Fjármálaráðuneytið segist ekki hafa gefið tilmæli um skipan stjórnarformanns

Bjarni-Ben.png
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið segir að því fari fjarri að það hafi beint til­mælum til Banka­sýslu rík­is­ins sem hafi falið í sér til­raun til að reyna að hlut­ast til um skipan stjórn­ar­for­manns fjár­mála­fyr­ir­tæk­is. Í umsögn um frum­varp um lög um með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum segir Jón Gunnar Jóns­son,  for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, að Guð­mundur Árna­son, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, hafi reynt að hlut­ast til um skipan stjórn­ar­for­manns fjár­mála­fyr­ir­tækis sem ríkið á eign­ar­hlut í með sím­tölum við sig í júní og júlí 2014. Hann hafi einnig reynt að fá stjórn­ar­fundi í sama fyr­ir­tæki frestað. Jón Gunnar seg­ist hafa mót­mælt þessum afskiptum sem hann taldi ekki í sam­ræmi við lög og að hann hafi auk þess upp­lýst stjórn stofn­un­ar­innar um þau.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hahags­ráðu­neyt­is­ins og óskaði eftir við­brögðum vegna þess­ara ásak­ana. Í skrif­legu svari ráðu­neyt­is­ins segir að þegar sam­ein­ing Spari­sjóðs Bol­ung­ar­víkur við Spari­sjóð Norð­ur­lands stóð fyrir dyrum í júlí 2014 hafi verið óein­ing um sam­ein­ing­una og að hætta var á að hún myndi ekki ganga eftir vegna óánægju heima­manna á Bol­ung­ar­vík­. „Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra óskaði eftir því við ráðu­neyt­is­stjóra að þessum upp­lýs­ingum um óánægju heima­manna yrði komið á fram­færi við Banka­sýslu rík­is­ins þannig að leita mætti leiða til að tryggja sam­stöðu um sam­ein­ingu þess­ara tveggja spari­sjóða í sam­ræmi við mark­mið eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki, þar sem segir að stuðla skuli að hag­ræð­ingu í fjár­mála­kerf­inu, og stefnu Banka­sýsl­unn­ar. Ræddi ráðu­neyt­is­stjóri í fram­haldi af því við bæði þáv. for­mann stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins og forstjóra stofn­un­ar­innar þar sem þessum áhyggjum og sjón­ar­miðum var komið á fram­færi. Í þeim sam­tölum kom fram að e.t.v. væri mögu­leiki að seinka boð­uðum stjórn­ar­fundi hins sam­ein­aða spari­sjóðs ef það mætti verða til að tryggja að sátt gæti orðið um fram­hald máls­ins.

Ekki var af hálfu ráðu­neyt­is­ins óskað eftir sér­stökum trún­aði um þessi sam­töl og því fer fjarri að þessi sam­töl hafi falið í sér til­mæli af hálfu ráðu­neyt­is­ins, enda er sér­stak­lega kveðið á um veit­ingu til­mæla frá ráðu­neyt­inu til stofn­un­ar­innar í lögum um Banka­sýslu rík­is­ins“.

Auglýsing

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur einnig fram að málið hafi verið rætt innan þáver­andi stjórnar Banka­sýsl­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None