Eysteinn Þórir hreppti Hríseyjarferjuna

Vegagerðin tók lægsta boði í rekstur Hríseyjarferjunnar á árunum 2023-2025. Eysteinn Þórir Yngvason bauð rúm 85 prósent af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar í reksturinn, fyrir hönd óstofnaðs félags, en hann rak Viðeyjarferjuna frá 1993 til 2008.

Hríseyjarferjan Sævar.
Hríseyjarferjan Sævar.
Auglýsing

Vega­gerðin ákvað fyrir helgi að taka til­boði Eysteins Þóris Yngva­sonar í rekstur Hrís­eyj­ar­ferj­unnar á árunum 2023-2025, en Eysteinn Þórir átti, fyrir hönd óstofnað einka­hluta­fé­lags, lægsta boðið sem barst í útboði sem Vega­gerðin stóð fyrir nú undir lok árs­ins.

Til­boð Eysteins Þóris hljóð­aði upp á 297,6 millj­ónir króna án vsk., sem sam­svarar 85,3 pró­sentum af 347,7 millj­óna króna kostn­að­ar­á­ætlun Vega­gerð­ar­inn­ar. Eysteinn Þórir er ekki ókunnur ferju­rekstri, en hann rak Við­eyj­ar­ferj­una frá árinu 1993 til 2008.

Alls bár­ust þrjú til­boð í rekstur Hrís­eyj­ar­ferj­unn­ar, en hin tvö voru vel yfir kostn­að­ar­á­ætlun Vega­gerð­ar­inn­ar.

Félagið Ferry ehf. á Árskógs­sandi bauð 489 millj­ónir króna án vsk. í rekst­ur­inn eða 140,6 pró­sent af kostn­að­ar­á­ætlun og félagið Andey ehf. í Hrísey, sem hefur ann­ast rekst­ur­inn und­an­farin fimm ár, bauð 534,3 millj­ónir króna, eða sem sam­svarar 153,7 pró­sentum af kostn­að­ar­á­ætl­un­inni.

Það verður því félag Eysteins sem að óbreyttu mun taka að sér rekstur ferju­leið­ar­innar til og frá Hrísey næstu árin, en not­ast er við ferj­una Sæv­ar, sem er í eigu Vega­gerð­ar­inn­ar, í sigl­ing­un­um.

Hrísey­ingar ótt­ast fækkun ferða

Nokkur kurr var meðal Hrísey­inga eftir að útboðs­gögnin voru kynnt í októ­ber­mán­uði, og þá ekki síst varð­andi það að Vega­gerðin óskaði eftir til­boðum í 2.840 árlegar ferð­ir, með mögu­leika á 20 pró­sent við­bót, en núna er að renna sitt skeið samn­ingur sem kveður á um að 3.100 ferðir séu sigldar á milli Árskógs­sands og Hrís­eyjar á ári.

Auglýsing

„Al­menn sátt ríkir um núver­andi ferju­á­ætlun og getur breyt­ing á áætlun eða fækkun ferða haft veru­leg áhrif á skil­yrði til búsetu í Hrís­ey. Nið­ur­fell­ing á ákveðnum ferðum getur haft þau áhrif að ómögu­legt yrði fyrir íbúa að sækja atvinnu í landi ásamt tak­mörkun á mögu­leikum íbúa að stunda félags­starf, íþrótta­starf, sækja menn­ing­ar­við­burði svo eitt­hvað sé nefnt. Teljum við frá­leitt að það sé á valdi rekstr­ar­að­ila að ákveða ferju­á­ætl­un, hún ætti að vera föst í útboðs­gögnum og breyt­ingar á henni gerðar í sam­ráði við íbúa og not­endur þjón­ust­unn­ar,“ sagði í bréfi sem for­maður hverf­is­ráðs Hrís­eyj­ar, verk­efna­stjóri byggða­verk­efn­is­ins Áfram Hrísey og for­svars­maður ferða­mála­ráðs eyj­unnar sendu á þing­menn í nóv­em­ber­mán­uði.

Vega­gerðin segir hana ekki standa til

Vega­gerðin brást við fram­settri gagn­rýni með til­kynn­ingu, þar sem kom fram að ferðum í Hrísey yrði ekki fækkað og breyt­ingar á sigl­ingum Hrís­eyj­ar­ferju væru ekki á borð­inu, þó að Vega­gerðin vildi auka svig­rúm til að ekki þyrfti að sigla að óþörfu með tóma ferju.

„Ekki eru fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á ferðum ferj­unnar út í Hrís­ey. Hins vegar viljum við ekki sigla tómri ferju á milli lands og Hrís­eyj­ar. Því viljum við hjá Vega­gerð­inni hafa svig­rúm til að breyta áætlun í sam­ráði við íbúa ef útlit er fyrir mjög slæma nýt­ingu á ferðum ferj­unn­ar. Það er best að sigla ekki ef það eru ekki far­þegar um borð. Það er stóra mál­ið,“ var haft eftir Hall­dóri Jörg­ens­syni for­stöðu­manni almenn­ings­sam­gangna hjá Vega­gerð­inni í til­kynn­ingu Vega­gerð­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent