Facebook reisir umhverfisvænt gagnaver í Texas

gagnaver_facebook.jpg
Auglýsing

Sam­fé­lags­miðl­aris­inn Face­book ætlar að byggja gagna­ver í Fort Worth í Texas sem verður ein­göngu knúið með end­ur­nýj­an­legri orku. Til þess fjár­festir fyr­ir­tækið 500 millj­ónum banda­ríkja­dala eða um 67 millj­örðum íslenskra króna.

Áætl­anir gera ráð fyrir að gagna­verið verði til­búið til notk­unar seint á næsta ári en fyrir rekur Face­book fimm álíka gagna­ver í Iowa, Oregon, Norð­ur­-Kar­ólínu og Luleå í Sví­þjóð. Til að spara orku verður vél­bún­aður þessa gagna­vers ekki kældur með raf­knúnum viftum heldur með nátt­úru­legum vind­um. Slíkt hóf Face­book að gera í Oregon með góðum árangri.

Á frétta­bloggi Face­book segir Tom Fur­long, yfir­maður inn­viða fyr­ir­tæk­is­ins að þetta verði eitt þró­aðasta, afkasta­mesta og umhverf­is­væn­asta gagna­ver í heim­in­um. „Þróun okkar á gagna­ver­unum er mik­il­vægur hluti af því að auka hag­kvæmni inn­viða fyr­ir­tæk­is­ins og hefur þegar sparað okkur meira en tvo millj­arða doll­ara í kostnað síð­ustu þjú ár.“

Auglýsing

Vind­orka verður beisluð til að knýja gagna­verið en 200 mega­vatta vind­orku­ver hefur verið reist til að anna orku­eft­ir­spurn nýja gagna­vers­ins. „Kolefna­spor hvers not­anda á ári á Face­book er nú jafn mikið og af með­al­stórum bolla af latté,“ segir Fur­long enn fremur í bloggi sínu.

Stór­fyr­ir­tæki í tölvu­iðn­aði kepp­ast nú við að reisa gagna­ver víðs­vegar um heim­inn. Fyrr á þessu ári bár­ust fregnir þess efnis að tölvuris­inn Apple hafi þreifað fyrir mögu­leika á að reisa gagna­ver hér á landi. Verið reisti Apple að lokum í Dan­mörku.

Á vef íslenskrar verk­fræði­stofu er bent á hag­kvæmni­mögu­leika þess að reisa gagna­ver á Íslandi. Hér eru góðir kæli­mögu­leikar og lágt orku­verð miðað við það sem þekk­ist ann­ar­staðar í heim­in­um. „Úti­hiti er að jafn­aði mjög lágur og loft­raki að sama skapi. Á Íslandi þarf því minni raf­orku til rekst­urs gagna­vera en í flestum öðrum löndum heims,“ segir á vef Eflu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None