Félag atvinnurekenda: Alþingi stendur vörð um "þrönga hagsmuni og ónýtt kerfi"

15535315495_97cbda6cae_z.jpg
Auglýsing

Alþingi sam­þykkti í síð­ustu viku breyt­ingu á búvöru­lögum sem festir í sessi núver­andi fyr­ir­komu­lag útboðs á inn­flutn­ings­kvótum fyrir búvör­ur. Stjórn­ar­flokk­arnir tveir og þing­menn Vinstri grænna greiddu atkvæði með breyt­ing­unni en þing­menn Sam­fylk­ingar og Bjartrar fram­tíðar á móti. Félag Atvinnu­rek­enda segir að með breyt­ing­ar­til­lög­unni sé verið að hylma yfir brot á rétt­indum neyt­enda og að um enn eitt dæmið sé að ræða þar sem Alþingi standi vörð um „þrönga hags­muni og ónýtt kerf­i.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur bent á að fyr­ir­komu­lag sem nú er um útboð á inn­flutn­ings­kvótum fyrir búvör­ur, og byggir á ára­tuga gömlum við­mið­um, stuðli að hærra vöru­verði, hamli sam­keppni og hindri aðgang nýrra inn­flutn­ings­fyr­ir­tækja að mark­aðn­um.  Vegna þess hefur eft­ir­litið ítrekað lagt til að útboð á toll­kvótum verði aflagt, síð­ast í skýrslu sinni um dag­vöru­mark­að­inn sem var gefin út í mars síð­ast­liðn­um. Þar er lagt til að „Út­boð land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins á toll­kvótum vegna inn­flutn­ings á kjöti, smjöri og ostum verði felld niður í núver­andi mynd. Verði þau ekki lögð niður er lagt til að úthlutun verði end­ur­gjalds­laus og eftir atvikum hlut­kesti varpað sé ásókn umfram kvóta.“

Lítil sem engin umræða í þing­inu



Í frétt sem birt­ist á vef Félags atvinnu­rek­enda í dag er vakin athygli á því að skömmu fyrir þing­lok í síð­ustu viku hafi meiri­hluti atvinnu­vegna­efndar skilað nefnd­ar­á­liti.  Því áliti hafi fylgt breyt­ing­ar­til­laga, um að fella burt  heim­ild ráð­herra í búvöru­lög­unum til að láta hlut­kesti ráða úthlutun þegar umsóknir ber­ast um meiri inn­flutn­ing en nemur toll­kvóta. Í nefn­ar­á­lit­inu seg­ir: „Ástæða til­lögu þess­arar eru dómar sem féllu nýverið í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að það að ráð­herra hafi val um hvorri aðferð 3. mgr. 65. gr. sé beitt, þ.e. hvort hlut­kesti sé varpað eða til­boða leit­að, feli í sér að hann hafi ákvörð­un­ar­vald um hvort skattur sé lagður á eða ekki.“

Félag atvinnu­rek­enda segir að þessi veiga­mikla breyt­ing hafi fengið litla sem enga umræðu í atvinnu­vega­nefnd né á Alþingi áður en breyt­ing­ar­til­lagan var sam­þykkt. Þing­menn Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ingar greiddu atkvæði gegn henni þegar hún var að lögum en stjórn­ar­flokk­arnir og Vinstri grænir studdu hana.

Auglýsing

Hylmt yfir brot í stað þess að rétta hlut neyt­enda



Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir í frétt­inni að vinnu­brögðin með ólík­indum en að þau komi ekki að öllu leyti á óvart. „Þegar kemur að land­bún­að­inum virð­ast bæði rík­is­stjórn og Alþingi, sama hver er þar í meiri­hluta, líta svo á að sjón­ar­mið um sam­keppni og hag neyt­enda skipti ekki máli. Þegar brotið er á rétti neyt­enda fer lög­gjaf­inn í það að hylma yfir brotið og rétt­læta það í stað þess að rétta hlut neyt­enda. Þetta er galið.[...]Þetta er því miður enn eitt dæmið um að Alþingi stendur vörð um þrönga hags­muni og ónýtt kerfi. Réttur neyt­enda skiptir engu máli.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None