Ferðaskrifstofum veitt aukaár til að byrja að greiða Ferðaábyrgðarsjóði til baka

Ráðherra ferðamála hefur tekið ákvörðun um að fresta fyrsta gjalddaga á lánum sem ríkið veitti ferðaskrifstofum til að endurgreiða neytendum pakkaferðir til 1. desember 2022. Staða ferðaskrifstofa er sögð erfið, í tilkynningu atvinnuvegaráðuneytisins.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála.
Auglýsing

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttur ráð­herra ferða­mála hefur tekið ákvörðun um að fresta fyrsta gjald­daga hér­lendra ferða­skrif­stofa, vegna lána sem þær hafa fengið úr Ferða­á­bygð­ar­sjóði, um eitt ár.

Því munu ferða­skrif­stof­ur, sem fengu lán­aða alls 3,2 millj­arða frá rík­inu í fyrra til þess að end­ur­greiða ferða­mönnum vegna ferða sem ekki voru farnar eða afpant­að­ar, ekki byrja að greiða af lán­unum fyrr en 1. des­em­ber árið 2022.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Þar segir einnig að til skoð­unar sé hjá ráðu­neyt­inu að lengja láns­tíma lán­anna sem ferða­skrif­stof­urnar fengu frá ferða­á­byrgð­ar­sjóðn­um.

Ferða­á­byrgða­sjóði var komið á fót síð­asta sumar til þess að veita ferða­skrif­stofum lán til þess að end­ur­greiða ferða­mönnum vegna ferða sem var aflýst eða þær afpant­aðar á tíma­bil­inu 12. mars til 31. júlí í fyrra, þegar fyrsta bylgja kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins setti ferða­lög á milli landa úr skorð­um.

Gætu ein­ungis greitt af lánum í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að í sumar hafi verið fylgst náið með þróun og horfum í rekstri ferða­skrif­stofa og að þrátt fyrir aukn­ingu í sölu ferða í sumar og þrátt fyrir að sú aukn­ing myndi halda sér út árið, sem ekki sé öruggt, sé „tölu­vert í að umsvif og lausa­fjár­staða ferða­skrif­stofa verði þannig að þeim verði kleift að standa straum af umtals­verðum afborg­unum af lánum frá Ferða­á­byrgða­sjóð­i.“

Þar segir jafn­framt að aðstæður í ferða­þjón­ustu hafi „breyst hratt“ að und­an­förnu, meðal ann­ars vegna breyt­inga á reglum á landa­mærum fyrir Íslend­inga og þá sem hafa tengsl við land­ið, sem nú þurfa að fram­vísa nei­kvæðu PCR-­prófi fyrir kom­una til lands­ins.

Auglýsing

„Þessar breyt­ingar hafa dregið úr ferða­vilja Íslend­inga erlendis og dregið hefur úr bók­unum ferða­skrif­stofa. Í ljósi þeirrar óvissu í rekstri ferða­skrif­stofa er það því sam­dóma mat aðila að íslenskar ferða­skrif­stofur muni ekki geta greitt af lánum frá Ferða­á­byrgða­sjóði á gjald­daga 1. des­em­ber nk. nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vik­um. Því hefur ráð­herra ákveðið að fresta gjald­daga fyrstu afborg­ana lána úr sjóðnum enn um sinn, eða til 1. des­em­ber 2022,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þar er haft eftir Þór­dísi Kol­brúnu að það sé hennar mat að „hags­munum rík­is­sjóðs og íslenskrar ferða­þjón­ustu sé best borgið með því að gjald­daga fyrstu afborg­unar verði frestað“ og að ferða­skrif­stofum muni með þeim hætti „gef­ast aukið svig­rúm til að aðlaga rekstur sinn og bæta lausa­fjár­stöðu sína.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent