Fjárfestar búa sig undir vaxtahækkanir

Búist er við lægðum á hlutabréfamörkuðum eftir því sem seðlabankar víða um heim munu líklega hækka stýrivexti sína á næstu vikum. Norski olíusjóðurinn hvatti einkafjárfesta til að halda í bréfin sín, þrátt fyrir miklar verðsveiflur.

Hlutabréf gætu orðið fyrir nokkrum skelli í ár, verði boðaðar vaxtahækkanir seðlabanka víða um heim að veruleika.
Hlutabréf gætu orðið fyrir nokkrum skelli í ár, verði boðaðar vaxtahækkanir seðlabanka víða um heim að veruleika.
Auglýsing

Grein­ing­ar­að­ilar spá því að Eng­lands­banki muni hækka stýri­vexti sína um 0,25 pró­sentu­stig á fimmtu­dag­inn, þar sem verð­bólgan þar í landi hefur reynst þrá­lát . Sömu­leiðis er búist við vaxta­hækk­unum í Banda­ríkj­unum á þessu ári, en þessar vænt­ingar hafa nú þegar skapað óróa á hluta­bréfa­mark­aði.

Minna til­lit tekið til fyr­ir­tækja

The Guar­dian greindi frá vaxta­hækk­un­ar­spám grein­ing­ar­að­ila í Bret­landi í morg­un, en verð­bólgan þar í landi nam 5,4 pró­sentum í síð­asta mán­uði. Eng­lands­banki hefur varað við því að verð­hækk­an­irnar verði enn meiri á næstu mán­uðum og að verð­bólgan gæti náð hámarki í um sex pró­sentum í apr­íl.

Sér­fræð­ingar hjá EY og Gold­man Sachs telja að pen­inga­stefnu­nefnd Eng­lands­banka muni mæta þessum verð­hækk­unum með vaxta­hækk­unum á næstu fundum sín­um. Einn þeirra bjóst við að stýri­vext­irnir verða nálægt 1,25 pró­sentum þar í landi í lok árs.

Auglýsing

Þrátt fyrir að vaxta­hækk­an­irnar geti aukið á vanda­mál fyr­ir­tækj­anna sem hafa orðið illa úti í far­aldr­inum telja grein­ing­ar­að­il­arnir að pen­inga­stefnu­nefnd Eng­lands­banka muni taka minna til­lit til þeirra á næst­unni, þar sem efna­hags­leg áhrif kór­ónu­veirunnar hafa minnk­að.

Gustar um mark­aði

Fjár­festar vest­an­hafs búast einnig við að Seðla­banki Banda­ríkj­anna muni hækka vexti á næstu mán­uð­um, en verð­bólgan þar í landi náði sjö pró­sentum í síð­asta mán­uði og hefur ekki verið hærri í 39 ár. Líkt og Fin­ancial Times greinir frá hafa vænt­ing­arnar um vaxta­hækk­anir nú þegar haft áhrif á verð­bréfa­mark­aði þar í landi, þar sem fjár­mögn­un­ar­kostn­aður fyr­ir­tækja hefur hækk­að.

Gustað hefur um banda­ríska hluta­bréfa­mark­aði á síð­ustu vik­um, en S&P 500 hluta­bréfa­vísi­talan er nú átta pró­sentum lægri en hún var fyrir mán­uði síð­an. Sam­kvæmt Fin­ancial Times er virði hluta­bréfa hjá tækni­fyr­ir­tækjum sem fóru í hluta­fjár­út­boð í fyrra nú að með­al­tali þriðj­ungi minna en útboðs­verð þeirra.

Þrátt fyrir þessar vend­ingar er ekki búist við að Seðla­banki Banda­ríkj­anna hverfi frá áformum um vaxta­hækk­an­ir, en mark­aðs­að­ilar gera nú ráð fyrir allt að fimm vaxta­hækk­unum vest­an­hafs á árinu.

Olíu­sjóð­ur­inn segir fjár­festum að halda

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í Nor­egi hefur einnig verið á nið­ur­leið síð­ustu vik­urn­ar, en Nico­lai Tan­gen, for­stjóri norska olíu­sjóðs­ins, var­aði við storma­sömum tímum á verð­bréfa­mörk­uðum með verð­sveiflum og verð­lækk­unum í við­tali við norska mið­il­inn E24. Sömu­leiðis er búist við vaxta­hækk­unum þar í landi, en Seðla­banki Nor­egs hefur varað við 0,25 pró­senta hækkun í mars.

Tangen sagði að norski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hafi fengið marga nýja einka­fjár­festa til sín á síð­ustu miss­er­um. „Margir þeirra hafa ekki upp­lifað stórar nið­ur­sveiflur í mark­aðnum og geta verið óör­uggir um hvað þeir ættu að gera þegar það gustar um kaup­hall­irn­ar,“ bætti hann við.

Trond Grande, aðstoð­ar­for­stjóri olíu­sjóðs­ins, sagði að meg­in­ráðið til þess­ara fjár­festa væri að halda kyrru fyrir ef þeir geta það, þar sem verðið gæti sveifl­ast upp aft­ur.

Olíu­sjóð­ur­inn á hluta­bréf í þús­undir fyr­ir­tækja um allan heim, sér í lagi í Banda­ríkj­unum og í Evr­ópu. Sam­kvæmt Tangen gætu verð­hækk­anir sem hafa átt sér stað á þessum mörk­uðum á síð­ustu árum gengið til baka ef verð­bólgan heldur áfram að aukast og seðla­bankar bregð­ast við með vaxta­hækk­un­um. „Þá er það lítið sem sjóð­ur­inn getur gert,“ segir hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent