Fjöldi íbúða sem er til sölu rýkur upp – hafa ekki verið verið fleiri frá því í fyrravor

Nú eru rúmlega eitt þúsund íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu. Þær hafa ekki verið svo margar síðan vorið 2021 og eru nú 132 prósent fleiri en í febrúar síðastliðnum. Skýr merki eru til staðar um að aðgerðir til að kæla markaðinn séu að virka.

7DM_3141_raw_170615.jpg húsnæði fólk hús fasteign hús reykjavík
Auglýsing

Alls eru 1.013 íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú, og þeim hefur fjölgað um 313 á einum mán­uði, eða um 45 pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn síðan vorið 2021 sem fleiri en eitt þús­und íbúðir eru til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt var á vef Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) í dag.

Miklar sveiflur hafa verið á fram­boði íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­an­farin ár. Þannig var fram­boðið umtals­vert í maí 2020, þegar um 2.200 íbúðir voru aug­lýstar til sölu. Í febr­úar 2022, náði fram­boðið hins vegar sögu­legu lág­marki þegar ein­ungis 437 íbúðir voru aug­lýstar til sölu. 

Í umfjöllun HMS kemur fram að fram­boðs­aukn­ingin virð­ist einkum vera til komin vegna eldri íbúða en fram­boð á nýjum íbúðum hefur vaxið hæg­ar. „Nú eru 151 ný íbúð til sölu en fjöldi þeirra fór minnst í 57 íbúð­ir. Aukið fram­boð er því ekki hægt að skýra með auknu fram­boði nýrra íbúða heldur er lík­leg­asta skýr­ingin sú að hægt hafi á sölu vegna minnk­andi eft­ir­spurn­ar. Um helm­ingur íbúða til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er á aug­lýstur á 75 m.kr. eða meira.“

Hærri vextir og tak­mark­anir á útlánum

Staðan sem komin er upp er afleið­ing af þeim aðgerðum sem Seðla­banki Íslands hefur gripið til til að kæla mark­að­inn. Þar ber fyrst að nefna að bank­inn hefur hækkað stýri­vexti úr 0,75 í 5,75 pró­sent frá því í maí í fyrra, með til­heyr­andi áhrifum á greiðslu­byrði íbúða­lána heim­ila. 

Í frétt RÚV frá því um liðna helgi kom fram að greiðslu­byrði af óverð­tryggðum lánum hafi í mörgum til­vikum auk­ist um ríf­lega hund­rað þús­und krónur á mán­uði, en slíkt teg­und lána naut gríð­ar­legra vin­sælda á þeim tíma sem vextir voru lág­ir. Búast má við því að greiðslu­byrðin muni hækka enn meira.

Auglýsing
Auk þess hefur bank­inn hert lána­skil­yrði til að tak­­marka enn frekar aðgengi ýmissa hópa að láns­fjár­­­mögnun til íbúð­­ar­­kaupa. Þetta er gert til að takast á við verð­­bólgu, sem mælist nú 9,7 pró­­sent og lækk­aði lít­il­lega milli mán­aða, en helsti drif­­kraftur hennar eru gríð­­ar­­legar hækk­­­anir á hús­næð­is­verði. Segja má að Seðla­­bank­inn hafi sjálfur leikið lyk­il­hlut­verk í því að skapa þær aðstæður sem hann er nú að leysa með því að lækka vexti niður í 0,75 pró­­sent á sínum tíma, sem voru lægstu vextir í Íslands­­­sög­unni, og með því að auka útlána­­getu við­­skipta­­banka um mörg hund­ruð millj­­arða króna með því að afnema tíma­bundið svo­­kall­aðan sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka sem leggst ofan á eigið fé þeirra. 

Hægir á hækkun íbúða­verðs

Í nýjustu  mán­að­­ar­­skýrslu HMS kom fram að heim­ili með hámarks­­greiðslu­­getu upp á 200 þús­und krónur á mán­uði gátu í apríl tekið 47 millj­­óna króna  verð­­tryggt lán en geta nú mest fengið 35 millj­­ónir króna að láni.

Ef þau vildu taka óverð­­tryggt lán þá gátu þau tekið 72 millj­­ónir króna í apríl en vegna nýrra krafna og hærri vaxta gætu þau nú mest tekið 42 millj­­ónir króna. „Því má ætla að margir verði afhuga íbúð­­ar­­kaupum á næst­unni. Ef stýri­vextir halda áfram að hækka mun hámarks­­láns­fjár­­hæð sem heim­ilin geta tekið minnka enn frekar,“ sagði í skýrsl­unn­i. 

Skýr merki hafa verið um að íbúða­mark­aður hafi verið að kólna á síð­ustu vikum vegna þess­ara aðgerða. Þannig hækk­aði íbúða­verð um 1,1 pró­sent í júlí, sem er mun minni hækkun en mælst hafði í lengri tíma. 

Íbúða­verð á svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­­sent síð­­­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­­sent síð­­asta árið. Ef horft er aftur til upp­­hafs kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins, sem hófst af alvöru hér­­­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækkað um 48 pró­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent