Fjórir milljarðar úr ríkissjóði vegna kaupa á Hótel Sögu og Mið-Fossum

Ríkissjóður borgar milljarða króna til að kaupa Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands, og mun eiga 73 prósent í byggingunni eftir kaupin á móti Félagsstofnun stúdenta. Byggingaréttur á lóðinni fylgir með.

hótel saga Mynd: Facebook-síða Hótel Sögu
Auglýsing

Í frum­varpi til fjár­auka­laga, sem birt var í gær­kvöldi, er lagt til að tæp­lega fjórum millj­örðum króna verði ráð­stafað úr í rík­is­sjóði á þessu ári í að kaupa á ann­ars vegar Hótel Sögu við Haga­torg, sem keypt yrði með Félags­stofnun stúd­enta, og jörð­ina Mið-­Fossa undir starf­semi Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. 

Ef af kaup­unum á Hótel Sögu verð­ur, sem virð­ist afar lík­legt, mun ríkið eiga 73 pró­sent í bygg­ing­unni á móti Félags­stofnun stúd­enta, sjálfs­eign­ar­stofn­unar sem á og rekur stúd­enta­garða. Sá hluti húss­ins sem verður nýttur af Háskóla Íslands mun að mestu leyti fara undir starf­semi mennta­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands. 

Land­bún­að­ar­há­skól­inn hefur frá árinu 2006 leigt aðstöðu á jörð­inni Mið-­Fossum undir starf­semi skól­ans á sviði reið­mennsku og umhirðu hrossa. í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir að Mið-­Fossar hafi verið til sölu á almennum mark­aði um nokk­urt skeið og því óvíst um fram­tíð­ar­að­gengi skól­ans að þess­ari kennslu­að­stöðu. „Af þeim sökum er talið æski­legt að ríkið eign­ist jörð­ina og þær bygg­ingar til að tryggja aðgengi skól­ans að aðstöð­unn­i.“

Bygg­ing­ar­réttur fylgir með

Háskóli Íslands óskaði eftir því í byrjun árs­ins 2021 að skoðuð yrðu kaup á Hótel Sögu undir starf­semi mennta­vís­inda­sviðs háskól­ans. Í frum­varp­inu segir að háskól­inn meti sem svo að um sé að ræða ein­stakt tæki­færi til að flytja mennta­vís­inda­sviðið inn á aðal­svæði háskól­ans á til­tölu­lega skömmum tíma ásamt því að skapa önnur tæki­færi til að styrkja starf­semi skól­ans á heild­stæðu svæði sem nær frá Vatns­mýri og yfir Suð­ur­göt­una að Haga­torgi.

Auglýsing
Núverandi hús­næði mennta­vís­inda­sviðs við Stakka­hlíð og Skip­holt sé um 14 þús­und fer­metrar sem þyki óhent­ugt en auk þess sé gert ráð fyrir að hægt sé að losa Nes­haga 16 sem háskól­inn hefur nýtt undir stoð­þjón­ustu. „Áætlað er að bæta hús­næð­isnýt­ingu háskól­ans tals­vert eða fara úr 15 þús. m² niður í 13 þús. m². Þar til við­bótar er verið að tryggja háskól­anum yfir­ráð á heild­stæðu svæði sem nær frá Vatns­mýri og yfir Suð­ur­göt­una.“

Í frum­varp­inu er sér­stak­lega tekið fram að Hótel Sögu fylgi bygg­ing­ar­réttur sem hægt sé að nýta undir aðra starf­semi háskól­ans til fram­tíðar lit­ið. 

Fast­eigna­fé­lagið greiðir fyrir end­ur­bætur og við­hald

Gert er ráð fyrir að rík­is­sjóður og Félags­stofnun stúd­enta standi að kaup­unum sam­eig­in­lega.

Í Frétta­blað­inu í dag er haft eftir jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands, að áætl­aður heild­ar­kostn­aður í kaup­verði og end­ur­bótum á hlut háskól­ans sé um 6,5 millj­arðar króna. 

Í fjár­auka­lög­unum kemur fram að miðað sé við að fast­eigna­fé­lag háskól­ans, sem komið var á fót á þessu ári, muni standa straum af kostn­aði vegna við­halds og end­ur­bóta á þeim hluta eign­ar­innar sem mun til­heyra háskól­an­um. Hlut­deild rík­is­ins í kaup­verð­inu greið­ist hins vegar með sér­stakri fjár­heim­ild úr rík­is­sjóð­i. 

Félags­stofnun stúd­enta hyggst nýta sinn hluta af hús­næð­inu undir stúd­enta­í­búð­ir. Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um umfang Félags­stofn­unar stúd­enta í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent