Fyrsti ráðherrann segir af sér vegna Partygate

Dómsmálaráðherra Bretlands hefur sagt af sér vegna veisluhalda í Downingstræti 10 þegar strangar sóttvarnareglur voru í gildi. Boris Johnson forsætisráðherra hefur greitt sekt vegna lögbrota. Hann ætlar ekki að segja af sér en lofar nánari útskýringum.

David Wolfson, dómsmálaráðherra Bretlands, hefur sagt af sér vegna Partygate. Hann var þó ekki viðstaddur neitt samkvæmi.
David Wolfson, dómsmálaráðherra Bretlands, hefur sagt af sér vegna Partygate. Hann var þó ekki viðstaddur neitt samkvæmi.
Auglýsing

Tveir ráð­herrar Bret­lands hafa verið sektaðir vegna Par­tyga­te-hneyksl­is­ins svo­kall­aða, Boris John­son for­sæt­is­ráð­herra og Rishi Sunak fjár­mála­ráð­herra.

Þeir ætla ekki að segja af sér en það hefur David Wolf­son, dóms­mála­ráð­herra Bret­lands og þing­maður Íhalds­flokks­ins, hins vegar gert.

Hann seg­ist ekki eiga aðra kosta völ en að segja af sér emb­ætti vegna þátt­töku ráð­herra í sam­kvæmum í Down­ings­stræti á tímum útgöngu­banns vegna COVID-19.

Auglýsing
Johnson og Sunak voru í vik­unni sektaðir af lög­reglu vegna brota á sótt­varna­reglum þegar þeir voru viðtstaddir afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra í Down­ingstræti 10 19. júní 2020. Þeir telja sekt­irnar ekki ástæðu til að segja af sér emb­ætti.

Þrír þing­menn Íhalds­flokks­ins kraf­ist afsagnar Johnon

Wolf­son segir hins vegar að hann hafi ekki séð annan kost en hann skrif­aði John­son bréf í vik­unni þar sem hann gagn­rýndi við­brögð rík­is­sjórn­ar­innar við sekt­unum og lög­brot­un­um. Wolf­son sendi John­son upp­sagn­ar­bréf sitt í morgun og er fyrsti ráð­herr­ann sem segir af sér vegna Par­tyga­te. Aðeins þrír þing­menn Íhalds­flokks­ins hafa sagt opin­ber­lega að John­son eigi að segja af sé.

Breska lög­­­reglan hefur rann­sakað tólf sam­­­kvæmi á vegum breskra yfir­­­­­valda á þeim tíma sem strangar sótt­­­varna­­­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­­­urs kór­ón­u­veirunn­­­ar. John­son var við­staddur í að minnsta kosti þremur þeirra. Fyrstu 20 sekt­­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­­um. John­­son var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­­lýsa um það yrði hann sektað­­ur.

John­son hefur lofað að útskýra mál sitt betur og fara yfir allt sem teng­ist sam­kvæm­unum sem hann hefur sagt við þing­menn. John­son hefur ítrekað verið sak­aður um lyg­ar. Í fyrstu sagði hann að engar reglur hafi verið brotn­ar. Í við­tali eftir að hann hafði verið sektaður sagði hann að í eigin afmæl­is­veislu hefði hann aldrei grunað að hann væri að brjóta lög.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent