Greiðslur frá Halldóri gerðu Reyni vanhæfan til að fjalla um Róbert

Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs er í tveimur aðskildum kærumálum talinn hafa gerst brotlegur við siðareglur Blaðamannafélagsins, vegna skrifa sem varða málefni Róberts Wessman.

Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs.
Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs.
Auglýsing

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands komst undir lok maí að þeirri nið­ur­stöðu að Reynir Trausta­son rit­stjóri Mann­lífs hafi gerst brot­legur við siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands, og að brot hans, í tveimur kæru­málum, teld­ust alvar­leg.

Athafna­mað­ur­inn Róbert Wessman er kær­andi í báðum mál­unum sem lögð voru fyrir siða­nefnd­ina, en umkvart­an­irnar varða skrif Reynis um Róbert, sem Róbert stað­hæfir að séu röng og kvartar yfir að fáist ekki leið­rétt.

Ástæðan fyrir því að Reynir telst hafa brotið gegn siða­reglum Blaða­manna­fé­lags­ins er sú að hann hefur þegið greiðslur frá Hall­dóri Krist­manns­syni, að eigin sögn vegna fyr­ir­hug­aðrar bóka­út­gáfu um Róbert Wessm­an.

Auglýsing

Metur siða­nefndin það sem svo að hann hafi með mót­töku fjár­muna frá Hall­dóri „orðið van­hæfur til að fjalla um mál­efni kær­anda í frétta­miðli með þeim hætti sem hin kærða umfjöllun er fram sett“ enda hafi honum borið sam­kvæmt 5. grein siða­reglna Blaða­manna­fé­lags­ins að forð­ast hags­muna­á­rekstra.

Þeir Róbert Wessman (t.v.) og Halldór Kristmannsson (t.h.) voru áður nánir samstarfsmenn. Mynd: Golli

„Með hinum kærðu skrifum sínum hefur kærði, Reynir Trausta­son, því ekki farið að þeirri grund­vall­ar­reglu að blaða­manni beri fyrst og síð­ast að gæta að hags­munum les­enda. Siða­nefnd telur að hann hafi fært hags­muni Hall­dórs Krist­manns­sonar framar og hafi því brotið gegn 5. gr. siða­reglna,“ segir í úrskurði nefnd­ar­inn­ar.

Hall­dór er fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Róberts, en hefur staðið í miklum ill­deilum við hann á opin­berum vett­vangi und­an­farin miss­eri, sem meðal ann­ars var fjallað um í frétta­skýr­ingum í Kjarn­anum síð­asta vor.

Í kæru Róberts til siða­nefndar var því haldið fram að Hall­dór hafi greitt Mann­lífi 30 millj­ónir króna „fyrir her­ferð gegn sér“ á síð­asta ári en í úrskurði siða­nefndar segir að Reynir hafi komið því á fram­færi við nefnd­ina að fjár­hæðin sem Hall­dór hafi greitt Reyni vegna útgáfu bókar sem hann er að skrifa um Róbert „sé langt frá því sem kær­andi full­yrð­ir“.

Trausti Haf­steins­son, frétta­stjóri Mann­lífs, var einnig kærður í öðru mál­inu þar sem hann skrif­aði eina af fimm umfjöll­unum sem Róbert til­tók í annarri af tveimur kærum sín­um. Mat siða­nefnd­ar­innar var að hann teld­ist ekki hafa brotið siða­reglur þar sem af gögnum máls­ins feng­ist ekki séð að hann hefði þegið greiðslur frá Hall­dóri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent