Grikkir ganga að kjörborðinu - staðan hnífjöfn samkvæmt könnunum

tsipras.jpg
Auglýsing

Kjör­staðir voru opn­aðir í Grikk­landi klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma en Grikkir kjósa í dag um hvort þeir vilji ganga að sam­komu­lagi við kröfu­hafa gríska rík­is­ins um frek­ari aðhalds­aðs­gerðir í rík­is­rekstri lands­ins í stað­inn fyrir frek­ari fjár­hags­að­stoð. Skoð­ana­kann­anir í síð­ustu viku bentu til þess að sam­komu­lagið yrði sam­þykkt með naum­indum en síð­ustu kann­anir sem voru gerðar áður en þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan sýndu að þjóðin virð­ist skipt­ast algjör­lega jafnt í afstöðu sinni gagn­vart því hvað skuli gera.

Kjör­staðir loka flestir klukkan fjögur að íslenskum tíma, þótt mögu­legt sé að halda þeim opnum tveimur tímum lengur krefj­ist aðstæður þess. Ef þeir loka á réttum tíma er búist við að fyrstu tölur úr atkvæða­greiðsl­unni muni liggja fyrir um klukkan 18 í kvöld að íslenskum tíma.

Evru­sam­starfið undir



Gríska rík­is­stjórn­in, undir for­ystu Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra, boð­aði til kosn­ing­anna í júní. Tsipras hefur verið mjög iðinn við að koma fram und­an­farið og hvetja fólk til að kjósa "nei". Hann seg­ist sann­færður um að það muni styrkja stöðu hans í frek­ari samn­ings­við­ræðum við þrieykið svo­kall­aða, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, Evr­ópska Seðla­bank­ann og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem eru helstu eig­endur krafna á hendur gríska rík­inu. Hljóðið í leið­togum Evr­ópu­sam­bands­ins er hins vegar ann­að.

Þeir hafa sagt að Grikkir muni þurfa að yfir­gefa evru­sam­starfið kjósi gríska þjóðin gegn sam­komu­lag­inu. Því verði í raun sjálf­hætt ef það verði nið­ur­stað­an. Auk þess þykir mjög lík­legt að rík­is­stjórn Grikk­lands, undir for­ystu Syr­iza flokks­ins, falli verði sam­komu­lagið sam­þykkt í dag.

Auglýsing

Ásak­anir um hryðju­verk og hótun um hand­ar­skurð



Yanis Vanoufa­kis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hefur einnig farið mik­inn í alþjóð­legum fjöl­miðlum í aðrag­anda kosn­ing­anna. Í gær ásak­aði hann kröfu­hafa lands­ins um hryðju­verk í við­tali við spænska blaðið El Mundo.  Í við­tali við Bloomberg á fimmtu­dag sagði hann ­myndi frekar skera af sér hend­ina heldur en að skrifa undir sam­komu­lag við kröfu­hafa sem gerir gríska rík­inu ókleift að end­ur­skipu­leggja skulda­stöð­una. Hann sagð­ist enn fremur myndu segja af sér ef gríska þjóðin kýs „Já“ í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni.

Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, hefur ásakað kröfuhafa Grikkja um hryðjuverk og sagt að hann skeri frekar af sér hendina en að kjósa með samkomulaginu í dag. Yanis Varoufa­kis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hefur ásakað kröfu­hafa Grikkja um hryðju­verk og sagt að hann skeri frekar af sér hend­ina en að skrifa undir sam­komu­lag sem hann veit að Grikkir ráða ekki við.

Í við­tal­inu við El Mundo í dag sagði hann: "Það sem þeir eru að gera Grikk­landi á sér nafn - hryðju­verk. Það sem Brus­sel og þrí­eykið [e. troika] vilja er að "já" vinni svo þeir geta auð­mýkt Grikki".

Mikið er undir á sunnu­dag­inn fyrir rík­is­stjórn Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra sem gæti fallið verði sam­þykkt samn­inga við kröfu­hafa nið­ur­stað­an. Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sagt með skýrum hætti að í raun kjósi Grikkir um áfram­hald­andi veru í evru­sam­starf­inu.



Bankar í Grikk­landi hafa verið lok­aðir alla vik­una og geta Grikkir ekki tekið hærri fjár­hæð en 60 evr­ur, ríf­lega átta þús­und krón­ur, úr hrað­bönkum á dag. Óvissa um fram­haldið hefur leitt til óvenju­legra aðstæðna í land­inu, svo ekki sé meira sagt, þar sem langar biðraðir mynd­ast við hrað­banka og bæði laun­þegar og atvinnu­rek­endur vita ekk­ert um fram­hald mála.



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None