Guðbjörg Matthíasdóttir: Þörf á samgönguátaki um land allt

athafnakonur.hei_.rar.jpg
Auglýsing

Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir, eig­andi Ísfé­lags Vest­manna­eyja, Íslensk/Am­er­íska og hlut­hafi í Morg­un­blað­inu, svo eitt­hvað sé nefnt, segir þörf vera á því að stór­efla sam­göngur í land­inu. Þær séu lífæð í fram­leiðslu­fyr­ir­tækj­um. „Greiðar og tryggar sam­göngur eru lífæð allra fram­leiðslu­fyr­ir­tækja og ég tel að við þurfum að fara í átak í sam­göngu­málum um allt land,“ sagði Guð­björg í sam­tali við vef Félags­kvenna í atvinnu­rekstri, FKA. Guð­björg var heiðruð í dag, og hlaut FKA við­ur­kenn­ing­una 2015. Við­ur­kenn­ing­arnar voru afhentar á degi FKA í Hörpu, en auk Guð­bjargar hlaut María Rún­ars­dótt­ir, stofn­andi Mint Solutions, hvatn­ing­ar­við­ur­kenn­ingu FKA og þakk­ar­við­ur­kenn­ing­una hlaut Guðný Guð­jóns­dótt­ir, eig­andi Mokka-­Kaffi.

Á vef FKA segir að Guð­björg eigi heiður skil­inn fyr­ir­ fram­lag sitt til atvinnu­mála frá því að hún tók við rekstri Ísfé­lags Vest­manna­eyja árið 2000, en á því ári lést maður henn­ar, Sig­urður Ein­ars­son lög­fræð­ing­ur. Hún er sjálf upp­alin í Reykja­vík, en flutt­ist til Vest­manna­eyja með manni sínum árið 1976.

„Árið 2000 var ár áfalla í lífi Guð­bjarg­ar, fjöl­skyldu hennar og sögu Ísfé­lags­ins. Í októ­ber það ár féll Sig­urður frá – og tveimur mán­uðum síðar brann nýtt og glæsi­legt frysti­hús félags­ins. Að sögn Guð­bjargar kom samt aldrei annað til greina en að halda ótrauð áfram. „Allra vegna“ segir hún. „Bæði fjöl­skyld­unnar og bæj­ar­fé­lags­ins vegna. Þetta var einn af fjöl­menn­ustu vinnu­stöð­unum í Vest­manna­eyjum og ekki annað í boði en að taka við kyndl­inum og reka fyr­ir­tækið áfram“. Það hefur hún gert allar götur síðan með glæsi­brag; dugn­aði og elju. ­Sjálf þakkar hún vel­gengn­ina ekki síst því hversu heppin hún er með sam­starfs­fólk – en þeir sem til þekkja eru sam­mála um að hennar eig­in­leik­ar; skyn­semi, áhugi og inn­sæi – skipti ekki minna máli. Ísfé­lag Vest­manna­eyja er nú með starf­semi bæði í Vest­manna­eyjum og á Þórs­höfn á Langa­nesi og er burða­rás í báðum bæj­ar­fé­lög­um. Hjá félag­inu starfa 250-300 manns. Er þá ótalin öll sú starf­semi sem Guð­björg kemur að í öðrum félög­um," segir á vef FKA þar sem við­ur­kenn­ing­arnar eru til umsagn­ar.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None