Hagvöxtur í Bandaríkjunum mælist 1,5 prósent - Seðlabankinn slær á vaxtaveðmálin

Janetyellen.jpg
Auglýsing

Hag­vöxtur í Banda­ríkj­unum mæld­ist 1,5 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, tölu­vert undir spám, en gert er ráð fyrir að hag­vöxtur verði á bil­inu tvö til þrjú pró­sent á þessu ári. Á kynn­ing­ar­fundi Seðla­banka Banda­ríkj­anna í dag, vegna þeirrar ákvörð­unar bank­ans að halda vöxtum óbreytt­um, kom fram að ekki væri lengur sér­stak­lega horft til þess að ástand mála á mörk­uðum utan Banda­ríkj­anna væri óvissu háð, heldur frekar að áfram yrði metið gaum­gæfi­lega hvort til­efni væri til þess að hækka vextir áður en árið er úti. Efna­hags­bati væri við­var­andi, þrátt fyrir að störfum fjölgi hægar nú en á sama tíma en í fyrra.

Janet Yellen, seðla­banka­stjóri, hefur ítrekað sagt á þessu ári að bank­inn muni hefja vaxta­hækk­un­ar­ferli um leið og efna­hags­bat­inn í Banda­ríkj­unum bíður upp á þær aðgerð­ir. Í byrjun árs­ins sagði hún að ekki væri ólík­legt að gripið yrði til vaxta­hækk­ana um mitt þetta ár, en nú hefur það dreg­ist, og hafa fjár­festar horft til þess að vextir muni ekki hækka á þessu ári, að því er fram kom í umfjöllun Wall Street Journal. Hafa margir þeirra sett háar fjár­hæðir undir í afleiðutengdum við­skipt­um, þar sem veðjað er á að vextir muni ekki hækka á þessu ári. 

Auglýsing


Seðla­bank­inn gaf sterk­lega til kynna á fundi sínum í dag að vextir gætu hækkað í des­em­ber, á síð­astu vaxt­á­kvörð­un­ar­degi árs­ins. Í umfjöllun Wall Street Journal segir að þetta hafi verið gert til að fæla frá spá­kaup­mennsku­fjár­festa. Fyrir fund­inn sýndu merki frá fjár­festum um þriðj­ungs­líkur á því að seðla­bank­inn myndi hefja vaxta­hækk­un­ar­fer­il­inn á þessu ári, en lík­urnar ruku upp eftir fund­inn, og sýndu merki á mörk­uðum þá, sem mæla fram­tíð­ar­hegðun fjár­festa á mark­aði með vaxta­á­lag, að ríf­lega 43 pró­sent líkur væru nú á því að vextir hækki fyrir lok árs. 

Stýri­vöxtum í Banda­ríkj­unum hefur verið haldið við núllið í Banda­ríkj­unum frá því um mitt ár 2008, eða í rúm­lega sjö ár. Atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum hefur jafnt og þétt minnkað og er nú rúm­lega fimm pró­sent, en fór hæst upp undir tíu pró­sent í byrjun árs 2009. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None