Hanna Katrín: Er hér farið vel með skattfé almennings?

Þingmaður Viðreisnar spyr hvort kaup ríkisins á Hótel Sögu sé „hagstæður gjörningur fyrir hið opinbera“.

Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar gerði kaup stjórn­valda á Hótel Sögu að umtals­efni á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins. Hún spurði meðal ann­ars hvort vel væri farið með skattfé almenn­ings í þessum gjörn­ingi.

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að í frum­varpi til fjár­­auka­laga, sem birt var í gær­­kvöldi, er lagt til að tæp­­lega fjórum millj­­örðum króna verði ráð­stafað úr í rík­­is­­sjóði á þessu ári í að kaupa á ann­­ars vegar Hótel Sögu við Haga­­torg, sem keypt yrði með Félags­­­stofnun stúd­­enta, og jörð­ina Mið-­­Fossa undir starf­­semi Land­­bún­­að­­ar­há­­skóla Íslands.

Í Frétta­­blað­inu í dag er jafn­framt haft eftir Jóni Atla Bene­dikts­­syni, rektor Háskóla Íslands, að áætl­­aður heild­­ar­­kostn­aður í kaup­verði og end­­ur­­bótum á hlut háskól­ans sé um 6,5 millj­­arðar króna. Vert er að taka fram að kaup­endur á eign­inni eru tveir, ann­ars vegar rík­is­sjóður og hins vegar Félags­stofnun stúd­enta.

Auglýsing

Hanna Katrín sagði að heim­ild væri í fjár­lögum upp á 6,5 millj­arða króna fyrir kaup og end­ur­bætur en hið rétta er að gert er ráð fyrir að rík­is­sjóður og Félags­stofnun stúd­enta standi að kaup­unum sam­eig­in­lega. Ríkið mun eiga 73 pró­sent í bygg­ing­unni en stofn­unin 27 pró­sent.

Í nýbirtu frum­varpi til fjár­auka­laga kemur fram að miðað sé við að fast­eigna­fé­lag háskól­ans, sem komið var á fót á þessu ári, muni standa straum af kostn­aði vegna við­halds og end­ur­bóta á þeim hluta eign­ar­innar sem mun til­heyra háskól­an­um. Hlut­deild rík­is­ins í kaup­verð­inu greið­ist hins vegar með sér­stakri fjár­heim­ild úr rík­is­sjóði. Félags­stofnun stúd­enta hyggst nýta sinn hluta af hús­næð­inu undir stúd­enta­í­búð­ir.

Óút­fylltur tékki

„Við vitum öll að það mun taka mörg ár að breyta þessu forn­fræga hús í skóla­hús og reynslan sýnir okkur líka að raun­kostn­aður er yfir­leitt mun hærri en áætl­an­ir. Það má jafn­vel tala um óút­fylltan tékka í þessu sam­hengi við svona gjörn­inga,“ sagði hún.

­Spurði hún í fram­hald­inu hvort þetta væri hag­stæður gjörn­ingur fyrir hið opin­bera. „Er hér farið vel með skattfé almenn­ings? Er það betri með­ferð opin­bers fjár að kaupa, gera upp og gjör­breyta sögu­frægu hús­næði sem er að sögn mikið skemmt, frekar en að reisa bygg­ingu sem er sér­stak­lega hönnuð með þarfir háskól­ans í huga?“ spurði hún.

„Þessar vanga­veltur um for­gangs­röðun verk­efna eru ekki gripnar úr lausu lofti. Tökum dæmi: Rík­is­stjórnin stefnir í að reka rík­is­sjóð með 170 millj­arða króna halla á næsta ári. Hún telur sig ekki hafa svig­rúm til að nið­ur­greiða sál­fræði­þjón­ustu líkt og Alþingi hefur farið fram á og hún ætlar að lækka fram­lög til mennta- og menn­ing­ar­mála um 2,3 millj­arða kr. á milli ára. Svo má líka horfa á þetta með þeim augum að víða um land er hús­næð­is­skortur og önnur hótel en Hótel Saga eru í rekstr­ar­vanda.

Ætli rík­is­stjórnin stefni að því með sömu rökum að kaupa þau hótel og gera að íbúð­um? Eða eru rekstr­ar­að­ilar Hótel Sögu í sér­stöðu þegar kemur að rán­dýrum redd­ingum eins og þessum sem almenn­ingur greiðir fyrir á end­an­um?“ spurði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent