IKEA lækkar verð og segir allar forsendur til staðar fyrir verslunina í landinu að gera það líka

ikea.jpg
Auglýsing

IKEA á Íslandi ætlar að lækka vöru­verð í verslun sinni á Íslandi um 2,8 pró­sent. Ástæður þessa eru þrjár: gengi íslensku krón­unnar hefur styrkst gagn­vart evru og gert inn­flutn­ing hag­stæð­ari, kjara­samn­ingar reynd­ust skap­legri en stefndi í og auk­inn ferða­manna­straumur hefur styrk þætti versl­unar í land­inu langt umfram það sem menn hefðu getað gert sér í hug­ar­lund. Þetta er haft eftir Þór­arni Ævars­syni, fram­kvæmda­stjóra IKEA á Íslandi í Morg­un­blað­inu í dag. 

Þar skorar Þór­ar­inn á versl­un­ina í land­inu að fylgja for­dæmi IKEA þar sem efna­hags­legar aðstæður hennar séu í flestum til­vikum þær sömu og hjá IKEA. Að hans mati hafi verið lítil inni­stæða fyrir mörgum þeirra hækk­anna sem til­kynnt hafi verið um und­an­far­ið. "Við berum sam­eig­in­lega ábyrgð á því að hleypa ekki verð­bólg­unni á fullan skrið. Það hafa allir í land­inu mikla hags­muni af því að halda aftur af henni. Versl­unin í land­inu býr við góð skil­yrði núna vegna sterk­ari krónu, auk­innar veltu og þeirra samn­inga sem náð­ust fyrr á árinu á vinnu­mark­að­i," segir Þór­ar­inn.

IKEA mun í næstu viku kynna nýjan vöru­lista og sam­hliða útgáfu hans skuld­bindur fyr­ir­tækið sig til að halda vöru­verði á þeim vörum sem þar eru kynntar eins til ágúst­loka 2016.

Auglýsing

Þór­ar­inn segir við Morg­un­blaðið að þessi aðgerð muni leiða til þess að velta fyr­ir­tæk­is­ins drag­ist tölu­vert sam­an. Um eitt pró­sent af allri korta­veltu lands­ins fari í gegnum IKEA og því megi gera ráð fyrir að ákvörð­unin muni leiða til þess að heild­ar­velta fyr­ir­tæk­is­ins lækki um 200 millj­ónir króna á því tíma­bili sem vöru­list­inn er í gildi.

Hærra verð á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum



Gunnar Bjarni Við­ars­son hag­fræð­ingur skrif­aði grein á Kjarn­ann í mars um vöru­verð í IKEA á Íslandi í sam­an­burði við verð í versl­un­inni í öðrum lönd­um. Nið­ur­staða hans var sú að verðið hér væri 20-30 pró­sent dýr­ara en í hinum Norð­ur­lönd­un­um. Í grein Gunn­ars sagði: "Hafa verður í huga að virð­is­auka­skattur í lönd­unum þremur er ekki sá sami og hér, mis­mun­ur­inn er 0,5 – 1,5 % á tíma­bil­inu. Einnig ber að nefna, að þar sem IKEA selur fleira en hús­gögn, svo sem sjón­vörp og fleiri vörur sem mögu­lega bera vöru­gjöld þá er sam­an­burð­ur­inn vænt­an­lega órétt­látur út frá sýn selj­and­ans, auk þess sem sam­an­burð­ar­tíma­bilið er stutt. Virð­is­auka­skattur hér á landi var, eins og kunn­ugt er, lækk­aður úr 25,5% í 24% um ára­mótin sem og vöru­gjöld á raf­tæki afnum­in.

Þótti höf­undi áhuga­vert að sjá, að þegar útsölur hófust hér á landi í byrjun árs­ins, þá minnk­aði verð­munur við útlönd um tíu pró­sentu­stig.[...]Þetta sýnir að útsölu­á­hrif voru meiri hér á landi sam­an­borið við verð­þró­un­ina erlend­is. Þess má þó geta að þrátt fyrir útsöl­una á Íslandi þá var verðið samt sem áður lægra á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Hús­gögn og heim­il­is­bún­aður hafa um 4,6% vægi í vísi­tölu neyslu­verðs. Tutt­ugu pró­sent lækkun á verði þessa flokks myndi þýða lækkun vísi­töl­unnar upp á 0,9% sem aftur myndi lækka verð­tryggð lán og auka kaup­mátt um sömu upp­hæð".

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None