Ísland og Bandaríkin skrifa undir samning um upplýsingaskipti - beint gegn skattaskjólum

FATCA.jpg
Auglýsing

Ísland og Banda­ríkin und­ir­rit­uðu í dag samn­ing um reglu­leg upp­lýs­inga­skipti vegna fjár­mála­stofn­ana í sam­ræmi við hin svoköll­uðu FATCA-lög, sem voru sam­þykkt í Banda­ríkj­unum árið 2010. FATCA er stytt­ing á enska heit­inu For­eign Accounts Tax Compli­ance Act og varðar banda­rísk lög um upp­lýs­inga­skyldu erlendra fjár­mála­stofn­ana í eigu banda­rískra aðila. Í til­kynn­ingu vegna und­ir­rit­un­ar­innar segir að „sam­kvæmt lög­unum ber öllu erlendum fjár­mála­stofn­unum að senda árlega upp­lýs­ingar um tekjur og eignir banda­rískra skatt­greið­enda beint til banda­rískra skatt­yf­ir­valda. Fall­ist þau ekki á að senda slíkar upp­lýs­ingar eiga þau á hættu að lagður verði 30% afdrátts­skattur á til­teknar greiðslur til þeirra sem upp­runnar eru í Banda­ríkj­un­um“.

Samn­ing­ur­inn sem und­ir­rit­aður var í dag felur í sér að upp­lýs­inga­skiptin fari fram milli skatt­yf­ir­valda í Banda­ríkj­unum og á Íslandi. Bæði ríkin þurfa að senda upp­lýs­ingar til hins um skatt­greið­end­ur, bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tæki, sam­kvæmt hon­um.

Mik­il­vægt skref í átak­inu gegn skatta­skjólum



Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skrif­aði undir samn­ing­inn fyrir hönd Íslands. Hann segir að það sé ánægju­legt að samn­ing­ur­inn sé í höfn. Til­koma hans létti byrði af fjár­mála­stofn­unum með því að auka sam­skipti vegna þeirra mála sem samn­ing­ur­inn nær yfir fari fram í gegnum skatt­yf­ir­völd. „Það er stefna íslenskra stjórn­valda að auka reglu­leg upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum á alþjóða­vísu og þessi samn­ingur er skref í þá átt“.

Robert C. Bar­ber, sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi, und­ir­rit­aði samn­ing­inn fyrir hönd lands­ins. Hann segir und­ir­rit­un­ina vera mik­il­vægt skref fram á við í sam­eig­in­legu átaki í bar­átt­unni gegn skatta­skjólum sem gagn­ist báðu lönd­un­um. FATCA sé eitt dæmi um það „djúpu og traustu bönd sem tengja á jákvæðan hátt hag­kerfi Íslands og Banda­ríkj­anna“.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None