Kæra vindorkufyrirtæki vegna dauða hafarna

Vindmyllurnar limlesta og valda dauða fjölda fugla, segja samtök íbúa á norskri eyju, íbúa sem töpuðu baráttunni við vindmyllurnar en hafa nú kært orkufyrirtækið.

Átta myllur eru í vindorkuverinu á Haramseyju. Þær sjást víða að.
Átta myllur eru í vindorkuverinu á Haramseyju. Þær sjást víða að.
Auglýsing

Að minnsta kosti tveir hafernir hafa drepist í árekstrum við vind­myllur á hinni norsku Hara­ms­eyju úti fyrir Álasundi. Íbúa- og nátt­úru­vernd­ar­sam­tök sem börð­ust gegn því að vind­orku­ver yrði reist á eyj­unni, hafa kært vind­orku­fyr­ir­tækið Harams Kraft fyrir brot á lögum um dýra­vel­ferð og lögum um verndun líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika. Krefj­ast sam­tökin þess að yfir­völd rann­saki hin meintu brot á grund­velli sömu laga. Þess er jafn­framt kraf­ist að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins verði ákærðir fyrir van­rækslu sem valdið hefði dauða haf­arn­anna.

Auglýsing

Tals­menn Harams Kraft, dótt­ur­fé­lags Zephyr, hafa svarað því til að á tveggja vikna fresti sé leitað með hundum á virkj­un­ar­svæð­inu, líkt og yfir­völd kröfð­ust við útgáfu fram­kvæmda­leyfa. Það vill hins vegar ekki tjá sig um hvernig brugð­ist er við til­kynn­ingum um slas­aða fugla.

Í­búa­sam­tökin segja að fuglar sær­ist, örkum­list og drep­ist með reglu­bundnu milli­bili og í miklum mæli vegna vind­myll­anna. Þau telja að vöktun virkj­un­ar­að­il­ans sé ekki í sam­ræmi við lög.

Vind­orku­verið á Hara­ms­fjalli hóf að rísa í lok maí í fyrra. Íbúa­sam­tökin höfðu barist gegn bygg­ingu þess fyrir dóm­stólum en allt kom fyrir ekki. Átta 150 metra háar vind­myllur standa nú á fjall­inu.

Á þessu sama fjalli eru tvö frið­lönd fyrir fugla. Svæðið er enn­fremur vin­sælt til úti­vist­ar.

Sam­tökin vilja að Harams Kraft verði gert að grípa til aðgerða til að draga eins mikið og hægt er úr árekstrum fugla á vind­myll­urn­ar. Þau hafa m.a. bent á að á öðru svæði, Smøla, hafi spaðar myll­anna verið mál­aðir svart­ir.

„Málið er nú komið til lög­regl­unnar og þá kemur í ljós hversu hátt Ham­ar­s-eyja er skrifuð á for­gangs­list­an­um,“ sagði í frétta­til­kynn­ingu frá íbúa­sam­tök­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent