Kallaði atburðarásina í aðdraganda afsökunarbeiðni Sigurðar Inga gaslýsingu

Aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar sagði við fjölmiðil um helgina að það væri „algjört bull“ að ráðherrann hefði viðhaft rasísk ummæli. Sigurður Ingi hefur nú gengist við þeim. Þingmaður Viðreisnar sagði viðbrögð aðstoðarmannsins vera gaslýsingu.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Sig­mar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisn­ar, spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um það í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag hvort hún teldi að það þyrfti ekki að skoða þá atburða­rás sem átti sér stað í aðdrag­anda þess að Sig­urður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra baðst afsök­unar á rasískum ummælum fyrr í dag.

Þar vís­aði Sig­mar til við­bragða Ing­veldar Sæmunds­dótt­ur, aðstoð­ar­manns Sig­urðar Inga, sem birt­ust í kjöl­far þess að fyrstu fréttir voru sagðar af ummælum Sig­urðar Inga um Vig­­­dísi Häsler, fram­­­kvæmda­­­stjóri Bænda­­­sam­­­taka Íslands. Þar var ráð­herr­ann sagður hafa vísað til Vig­­dísar sem „hinnar svörtu“ í sam­­kvæmi á fimmt­u­­dags­­kvöld. Ing­veldur vís­að því á bug í sam­tali við DV um helg­ina að ráð­herra hefði notað það orða­lag og sagði orð­rétt: „Þetta er algjört bull.“

Sig­urður Ingi baðst hins vegar afsök­unar á ummæl­unum síð­degis í dag og sagði orðin sem hann hefði notað hafa verið „óvið­ur­kvæmi­leg.“

Sagði Sig­mari að spyrja Sig­urð Inga

Sig­mar sagði að skoða þyrfti að afsök­un­ar­beiðni Sig­urðar Inga í ljósi þeirrar atburða­rás­ar. „Ég velti því fyrir mér hvort að þessi gas­lýs­ing sem að birt­ist okkur um helg­ina, hvort hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra svari okkur ekki með aðeins efn­is­meiri hætti, því eins leið­in­legt og mér þykir að standa hér í þessum ræðu­stól og tala um þetta þá er það alveg gríð­ar­lega mik­il­vægt. Verðum við ekki að velta fyrir atburða­rásinni áður en beðist var afsök­unar og hver er hljómur afsök­un­ar­beiðni þegar aðdrag­and­inn er þessi?“

Gas­lýs­ing er tækni sem á ensku kall­ast „gaslight­ing“, Í henni felst að neita stans­­laust allri sök, afvega­­leiða, setja fram mót­sagn­ir, ljúga upp á fólk afstöðu, hengja sig í öll auka­at­riði og hanna nýja atburða­rás eftir á sem hentar mál­­stað þess sem er að verja sig.

Auglýsing
Katrín svar­aði því til að hún sæi ekki ástæðu til að draga heil­indi afsök­un­ar­beiðni Sig­urðar Inga í efa. „Hvað varðar orð aðstoð­ar­manns hæst­virts ráð­herra þá hlýt ég hins vegar að vísa vanga­veltum hátt­virts þing­manns til hæst­virts inn­við­a­ráð­herra þar sem téður aðstoð­ar­maður starfar. Ég ætla ekki að tjá mig um það hér­.“·

Kjarn­inn hefur reynt að ná sam­bandi við Ing­veldi, Sig­urð Inga og Sig­trygg Magna­son, hinn aðstoð­ar­mann Sig­urðar Inga, í dag vegna máls­ins en án árang­ur­s. 

„Duldir for­­dómar eru gríð­­ar­­legt sam­­fé­lags­­mein“

Vig­­­dís birti stöð­u­­­upp­­­­­færslu fyrr í dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­­­fólk Bænda­­­­sam­tak­anna.

Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­­­ast niður og skrifa yfir­­­lýs­ingu af þessu tagi. „Að­­stoð­­ar­­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­­ari mynda­­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­dómar eru gríð­­ar­­legt sam­­fé­lags­­mein og grass­era á öllum stigum sam­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

Í kjöl­far hennar birti Sig­urður Ingi eigin stöðu­upp­færslu og baðst afsök­un­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent