Kaupfélag Skagfirðinga og MS kúpla sig út úr skyrævintýrinu í Rússlandi

Kaupfélag Skagfirðinga hefur selt sig út úr IcePro, fyrirtæki sem stóð að framleiðslu Ísey skyrs í Rússlandi. Ísey útflutningur, systurfélag MS, hefur sömuleiðis rift leyfissamningi við rússneska fyrirtækið.

Kynningarefni fyrir Ísey skyr í Rússlandi.
Kynningarefni fyrir Ísey skyr í Rússlandi.
Auglýsing

Fyr­ir­tækið Ísey útflutn­ingur ehf., sem er syst­ur­fé­lag Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar, hefur rift leyf­is­samn­ingi sínum við rúss­neska félagið IcePro, sem verið hefur í hluta­eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, um fram­leiðslu og dreif­ingu á skyri undir merkjum ISEY-­skyr fyrir Rúss­lands­mark­að. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tækj­unum í dag.

Þar segir að Ísey útflutn­ingur ehf. hafi haft leyf­is­samn­ing­inn til skoð­unar und­an­farnar vikur vegna stríðs­rekst­urs Rúss­lands í Úkra­ínu og að honum hafi nú verið rift og búið sé að til­kynna ákvörð­un­ina til for­ráða­manna IcePro í Rúss­landi. Sam­hliða þess­ari ákvörðun hafi Kaup­fé­lag Skag­firð­inga dregið sig út úr eign­ar­haldi á félag­inu IcePro.

Fá svör feng­ust í mars

Kjarn­inn spurði Sig­ur­jón R. Rafns­son aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra hjá KS að því, þann 18. mars síð­ast­lið­inn, hvort það hefði verið „til ein­hverrar skoð­unar hjá KS að hætta skyr­fram­leiðslu og sölu í Rúss­landi í ljósi fram­göngu Rússa í Úkra­ín­u?“ en engin svör bár­ust við þeirri skrif­legu fyr­ir­spurn.

Auglýsing

Nokkrum dögum fyrr hafði Sig­ur­jón sagt blaða­manni í skrif­legu svari að stríðs­rekstur Rússa hefði ekki haft nein áhrif á skyr­fram­leiðslu og sölu í Rúss­landi og erfitt væri að sjá fyrir hvernig það þró­að­ist.

Kjarn­inn beindi einnig skrif­legri fyr­ir­spurn til MS þann 7. mars síð­ast­lið­inn, á almennt net­fang fyr­ir­tæk­is­ins, um hvort ljóst væri á þeirri stundu hvort hern­aður Rúss­lands í Úkra­ínu kæmi „ti með að hafa ein­hver áhrif á sér­leyf­is­samn­ing Mjólk­ur­sam­söl­unnar um fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu IcePro og Lact­ika JSC á Ísey skyri á rúss­neskum neyt­enda­mark­að­i“. Ekk­ert svar barst heldur við þeirri fyr­ir­spurn.

Engin rift­un­ar­á­kvæði sögð til staðar í gær

Í gær var hins vegar fjallað um málið í Frétta­blað­inu og þar meðal ann­ars haft eftir Ein­ari Ein­ars­syni, rekst­ar­stjóra Íseyjar hjá MS, að ekki væri búið að taka neina ákvörðun um þessi mál og að það væru hrein­lega „engin rift­un­ar­á­kvæði“ sem hægt væri að grípa til „vegna þess ástands sem er“.

En nú er ljóst að fram­leiðslu á skyri undir merkjum Íseyjar í Rúss­landi verður hætt.

Tekið er fram í til­kynn­ing­unni um málið að í ljósi umræðna um sölu á Ísey skyri í Rúss­landi sé vert að taka fram að aldrei hefur verið flutt út skyr frá Íslandi til Rúss­lands.

„Árið 2018 hóf fram­an­greint rúss­neskt félag, í eigu þar­lendra aðila og áður Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, fram­leiðslu og dreif­ingu á Ísey skyri í Rúss­landi sam­kvæmt umræddum leyf­is­samn­ingi sem nú hefur verið rift,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent