Konurnar í dómstólaráði urðu undir - vildu tilnefna konu í dómnefndina

hæstiréttur_opt.jpg
Auglýsing

Ágrein­ingur var um það innan dóm­stóla­ráðs hvort fara skyldi að beiðni yfir­valda um það að til­nefna konu ásamt karli í nefnd sem metur hæfi umsækj­enda um emb­ætti hæsta­rétt­ar- og hér­aðs­dóm­ara. Kon­urnar í ráð­inu vildu til­nefna konu en karl­arnir ekki. Karl­arnir voru í meiri­hluta dóm­stóla­ráðs og því varð ákvörðun þeirra ofan á.

Dóm­stóla­ráðs­menn­irnir Þor­gerður Erlends­dóttir og Þór­dís Inga­dóttir vildu að farið yrði að fyr­ir­mælum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og jafn­rétt­islög­um. Þetta kemur fram í bréfum frá dóm­stóla­ráði til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem sjá má hér að neð­an. „Dóm­stóla­ráðs­menn­irnir Þor­gerður Erlends­dóttir og Þór­dís Inga­dóttir standa ekki að þess­ari ákvörðun og telja að lög standi til þess að verða við beiðni ráð­herra eins og hún er fram sett,“ segir í bréf­inu sem Símon Sig­valda­son und­ir­rit­aði fyrir hönd dóm­stóla­ráðs. Það er svo aftur ítrekað í seinni bréfum að hvorki Þor­gerður né Þór­dís standi að afstöðu ráðs­ins í mál­inu.

Líkt og Kjarn­inn greindi frá í gær telja dóm­stóla­ráð, Hæsti­réttur og Lög­manna­fé­lag Íslands að þau séu ekki bundin af jafn­rétt­islögum þegar kemur að því að skipa sína full­trúa í dóm­nefnd­ina. Þau telja að ákvæði um nefnd­ina í lögum um dóm­stóla gangi framar jafn­rétt­islög­un­um, og eftir bréfa­skriftir við dóms­mála­ráðu­neytið ákvað ráðu­neytið að láta undan og skipa ein­göngu karla í nefnd­ina. Nefndin ákvað á dög­unum að Karl Axels­son væri hæf­astur umsækj­enda til að gegna emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara og hefur ákvörð­unin beint athygli að því hversu fáar konur eru dóm­arar og að skipan þess­arar nefnd­ar.

Auglýsing

Í fimmt­ándu grein jafn­rétt­islag­anna er kveðið á um að hlut­fall hvors kyns fyrir sig skuli ekki vera minna en 40 pró­sent í nefnd­um, ráðum og stjórnum á vegum hins opin­bera, þegar full­trú­arnir eru fleiri en þrír.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur sagt að það telji það alveg skýrt að ákvæði jafn­rétt­islaga eigi við í þessu til­vik­i líkt og ann­ars. Þá skoðun hafa fjöl­margir aðrir viðr­að, meðal ann­ars Jafn­rétt­is­stofa og tíu kvenna­sam­tök.

Bréf dóm­stóla­ráðs

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None