Krafa um að aðflutt fólk aðlag­aði sig að hreyf­ing­unni, ekki öfugt

Sólveig Anna Jónsdóttir segir að útlendingaandúð vera í hreyfingunni, en í mismiklum mæli. Einn starfsmaður Eflingar hafi sagt til að mynda sagt að aðflutta fólkið í félaginu, um helmingur félagsmanna, ætti „bara að læra íslensku“.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, sem sagði af sér sem for­maður Efl­ingar í síð­ustu viku, segir að hún og hennar nán­asta sam­starfs­fólk hafi strax gert kröfu um menn­ing­­ar­læsi í við­­móti á skrif­­stof­u félags­ins eftir að þau tóku við árið 2018. „Þarna unnum við mikið frum­­kvöð­uls­­starf. Við fórum strax í það að tryggja að allir fundir sem við höldum yrðu texta­túlk­að­­ir. Við förum strax í það að láta þýða fullt af efni. Svo förum við í að útbúa heima­­síð­­una og „mínar síð­­­ur“ innan hennar þannig að fólk geti nálg­­ast efni á íslensku, ensku og pólsku. Þetta hefur ver­ið, ásamt okkar mark­vissu og rót­tæku kjara­bar­áttu, þá hefur þetta verið það verk­efni sem ég hef verið mjög upp­­­tekin af að sé sinnt af fullum heil­indum gagn­vart félags­­­fólki Efl­ing­­ar.“

Þetta kemur fram í við­tali við Sól­veigu Önnu sem Kjarn­inn birti á laug­ar­dag. Um helm­ingur félags­manna Efl­ingar eru aðflutt fólk og Kjarn­inn greindi frá því í frétta­skýr­ingu fyrr í dag að erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hafi fjölgað um 33 þús­und á ára­tug. Þeir eru nú 14,4 pró­sent allra lands­manna og flestir setj­ast að í Reykja­vík. Fjöl­margir úr þeim hópi starfa í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu eða í bygg­inga­iðn­aði og Efl­ing er þeirra stétt­ar­fé­lag. 

Sól­veig Anna segir að það ríki útlend­inga­andúð í hreyf­ing­unni, en í mis­miklum mæli. „Ef það hefði verið við­­ur­­kennt að þessi hópur ætti að njóta alls þess sem hann á inni hjá þess­­ari hreyf­­ingu, þá hefði ekki þurft að bíða eftir að ný for­ysta kæmi. Krafan hafi verið sú að aðflutta fólkið aðlag­aði sig að hreyf­­ing­unni í stað þess að hreyf­­ingin aðlag­aði sig að þeirra stöð­u.“ 

„Þetta fólk á bara að læra íslensku“

Hún seg­ist hafa, ásamt nýrri stjórn Efl­ing­ar, ákveðið að nálg­ast for­mennsku sína í Efl­ingu sem verk­efn­i. Það verk­efni hafi verið tví­­þætt. Ann­­ars vegar að gera Efl­ingu að bar­átt­u­­sam­­tökum fyrir þá sem greiða félags­­­gjöld­in, verka- og lág­­launa­­fólks á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu. Og hins vegar að taka alla þjón­ust­una í gegn. „Þegar ég var í þess­­ari kosn­­inga­bar­áttu 2018 þá fór ég af stað með mjög rót­tæka orð­ræðu og rót­tækt plat­­form sem var efna­hags­­legt fyrst og fremst. En á öllum þeim fundum sem ég fór á og í sam­­tölum við félags­­­fólk kom það í ljós með mjög skýrum hætti að krafa fólks var sú að þjón­usta félags­­ins yrði mjög ræki­­lega tekin í gegn.“

Auglýsing
Það átti sér­­stak­­lega við gagn­vart aðfluttu fólki. „Ég horfð­ist í augu við það og átt­aði mig á því að ekki aðeins var aðflutt fólk á hrika­­lega slæmum stað hvað varðar laun og hús­næð­is­að­­stæður heldur gat það raun­veru­­lega ekki haft neinn aðgang að félag­inu. Það var engin virð­ing eða við­­ur­­kenn­ing á því inni í þessu skrif­­stofu­­virki að þessi stóri hóp­­ur, helm­ingur félags­­­fólks, ætti alla heimt­ingu á því að geta bara ávallt fengið alla þá þjón­­ustu sem það ætti rétt á og líka fulla heimt­ingu á því að geta tekið þátt í starfi félags­­ins.“

Sól­­veig Anna rifjar upp eitt dæmi um þetta verk­efni sem mætti þeim strax og hún og Viðar komu til starfa hjá Efl­ingu. Þá hafi verið haldin starf­­manna­fundur þar sem þau lýstu því að þessar breyt­ingar stæðu til. „Þá var bara hálaun­aður starfs­­maður skrif­­stof­unnar sem rétti upp hönd og segir „ég er ekki sam­­mála þessu. Þetta fólk á bara að læra íslensku“ og svo fram­­veg­­is. Þetta við­­mót hefur verið mjög raun­veru­­legt innan verka­lýðs­hreyf­­ing­­ar­innar í heild. Þessi full­yrð­ing mín er mjög auð­sann­an­­leg vegna þess að það er ekki fyrr en við komum þarna inn að hreyf­­ingin í heild fór að taka til í þessu mjög mark­visst. Að hún fór að við­­ur­­kenna og elta okkar for­­dæmi. Að við­­ur­­kenna að þetta aðflutta fólk eru ekki bara ein­hverjir far­and­verka­­menn og eitt­hvað fólk sem kemur og fer, heldur sest hérna að og eru þátt­tak­endur í sam­­fé­lag­inu. Að hreyf­­ingin eigi að vera fyrir það og eigi að þjón­usta það á allan hátt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent