Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað síðastliðið ár en hækkað utan þess

Þrátt fyrir hækkun á vísitölu leiguverðs milli mánaða hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað síðasta árið. Annars staðar er þróunin gagnstæð. Leigufélagið Bjarg hyggst lækka leigu á höfuðborgarsvæðinu en leiga félagsmanna á landsbyggð stendur í stað.

Frá upphafi árs 2014 hefur leiguverð hækkað álíka mikið á höfuðborgarsvæðinu og utan þess eða um 51,5 prósent á móti 50,3 prósentum.
Frá upphafi árs 2014 hefur leiguverð hækkað álíka mikið á höfuðborgarsvæðinu og utan þess eða um 51,5 prósent á móti 50,3 prósentum.
Auglýsing

Vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,3 pró­sent á á milli febr­úar á mars. Þrátt fyrir þessa hækkun hefur vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkað um 3,3 pró­sent á milli ára. Vísi­talan er nú svipuð og hún mæld­ist vorið 2019. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn.

Þró­unin er öfug í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þar lækkar vísi­talan um 0,5 pró­sent á milli febr­úar og mars en á milli ára hefur vísi­talan hækkað um 1,1 pró­sent. Á lands­byggð­inni hækk­aði vísi­tala leigu­verðs um 2,5 pró­sent milli mán­aða og hefur hún hækkað um 2,4 pró­sent frá því í fyrra. Skýrslu­höf­undar taka þó sér­stak­lega fram að vísi­talan fyrir lands­byggð­ina hafi sveifl­ast mikið á síð­ustu miss­erum, enda sé svæðið í heild víð­feðmt og sund­ur­leitt auk þess sem fáir samn­ingar liggi að baki útreikn­ingum hvers mán­að­ar.

Í skýrsl­unni kemur fram að hækkun leigu­verðs frá byrjun árs 2014 hafi hlut­falls­lega hækkað nán­ast jafn mikið á lands­byggð­inni líkt og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hækk­unin nemi 50,3 pró­sentum á lands­byggð­inni á tíma­bil­inu sam­an­borið við 51,5 pró­senta hækkun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Mynd: HMS

Leigu­fé­lag lækkar leigu í kjöl­far end­ur­fjár­mögn­unar

Í dag til­kynnti Bjarg leigu­fé­lag að það hygð­ist lækka leigu hjá um 190 leigu­tökum félags­ins. Munu með­alleigu­greiðslur leigu­taka lækka um 14 pró­sent, úr um 180 þús­und krónum í 155 þús­und. Þetta er gert í kjöl­far nýlegrar end­ur­fjár­mögn­unar og end­ur­skoð­unar rekstrar fjöl­býl­is­húsa Bjargs við Móa­veg og Urð­ar­brunn í Reykja­vík, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá félag­inu.

Þrátt fyrir að fast­eignir félags­ins á Akra­nesi og í Þor­láks­höfn hafi einnig farið í gegnum end­ur­fjár­mögnun hefur leigu­verð þar ekki breyst vegna breyt­inga á öðrum rekstr­ar­lið­um. Félagið segir leigu­verð þar engu að síður vera hóf­stillt og lægra en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, rúm­lega 120 þús­und krónur á mán­uði.

Auglýsing

Þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi hækkað meg­in­vexti sína í vik­unni eru vextir enn lágir í sögu­legu sam­hengi. Fyrir stýri­vaxta­hækk­un­ina á mið­viku­dag stóðu meg­in­vextir bank­ans í 0,75 pró­sentum og höfðu verið það síðan í nóv­em­ber síð­ast­liðnum en þá höfðu þeir aldrei áður verið eins lág­ir. Stýri­vextir standa nú í sléttu einu pró­senti. Fyrir rétt um tveimur árum hófst lækk­un­ar­hrina stýri­vaxta en í síð­ari hluta maí 2019 lækk­uðu vextir úr 4,5 pró­sentum niður í fjögur pró­sent.

Í áður­nefndri til­kynn­ingu Bjargs segir að félagið leiti allra leiða til að halda áfram end­ur­fjár­mögnun eigna félags­ins til að tryggja að leigu­takar félags­ins njóti þeirra vaxta­lækk­ana sem hafa átt sér stað síð­ast­liðin miss­eri.

Þing­lýstum leigu­samn­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgar ört

Í mars síð­ast­liðnum var 629 leigu­samn­ingum þing­lýst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt áður­nefndri skýrslu HMS, og hefur þeim fjölgað veru­lega. Í skýrsl­unni segir að samn­ing­arnir hafi verið mun fleiri en í sama mán­uði und­an­farin ár. Til sam­an­burðar var fjöldi þing­lýstra leigu­samn­inga í mars í fyrra 482 sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur fjöld­inn hæst farið í 770, í sept­em­ber á síð­asta ári.

Sömu sögu er ekki að segja á öðrum svæðum á land­inu en þar var fjöldi þing­lýstra leigu­samn­inga nær því sem tíðkast hef­ur. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var 127 leigu­samn­ingum þing­lýst og á lands­byggð­inni var 100 leigu­samn­ingum þing­lýst. Leigu­mark­að­ur­inn er því mun líf­legri um þess­ari mundir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en utan þess að mati skýrslu­höf­unda.

Mynd: HMS

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent