Maðurinn sem framdi báðar árásirnar í Kaupmannahöfn felldur

h_51799640-1.jpg
Auglýsing

Lög­reglan í Kaup­manna­höfn segir að hún hafi fellt mann sem framdi tvær árásir í borg­inni í gær sem drógu tvo menn til dauða og særðu þrjá. Mað­ur­inn var felldur eftir skor­bar­daga nálægt lest­ar­stöð­inni við Norð­ur­brú í nótt. Þetta kom fram á stuttum blaða­manna­fundi lög­regl­unnar í morgun. Ekki er talið að árás­ar­menn­irnir hafi verið fleiri en einn þótt að enn eigi eftir að rann­saka marga fleti máls­ins.

Griðarlegur viðbúnaður var í Kaupmannahöfn í alla nótt. Grið­ar­legur við­bún­aður var í Kaup­manna­höfn í alla nótt.

Tal­inn hafa ætlað að myrða skop­mynda­teikn­ara



Mað­ur­inn hóf skotárás á menn­ing­ar­húsið Kruttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn síð­degis í gær. Þar stóð yfir ráð­stefna um tján­ing­ar­frelsi Einn lést í þeirri árás og þrír lög­reglu­menn særð­ust. Ekki hefur verið greint frá því hver sá látni er en talið er að skot­mark árás­armanns­ins hafi verið sænski skop­mynda­teikn­ar­innar Lars Vilks, sem var á meðal fyr­ir­les­ara á ráð­stefn­unni.

Lars Vilks. Lars Vilks.

Auglýsing

Vilks hefur notið lög­reglu­verndar árum saman þar sem honum hefur áður verið sýnt bana­til­ræði, en hann hefur teiknað skop­myndir af Múhammeð spá­manni og verið kall­aður hinn sænski Kurt Westergaard. Vilk slapp ómeiddur frá árásinni. Honum var komið í skjól í eld­húsi menn­ing­ar­húss­ins af líf­vörðum sem gættu hans.

Flúði á dökklit­uðum Polo



Eftir að hafa hleypt af um 40 skotum flúði mað­ur­inn á dökklitum Volkswagen Polo. Upp­haf­lega var talið að ódæð­is­menn­irnir hefðu verið tveir en þegar leið á leit­ina af þeim kom í ljós að mað­ur­inn var einn að verki. Bif­reiðin fannst síðar yfir­gefin og var talið að mað­ur­inn hefði skipt um flótta­bíl.

Gríð­ar­legur við­bún­aður var í Kaup­manna­höfn og var allt til­tækt lög­reglu­lið kallað út til að leita að mann­in­um.

Skömmu eftir klukkan ell­efu að íslenskum tíma var svo til­kynnt um skotárás við sam­komu­hús gyð­inga í Kaup­manna­höfn. Þar skaut hann mann sem aðstoðar við ferm­ingu í höf­uðið með þeim afleið­ingum að hann lést.

Nokkrum klukku­stundum síðar ætl­aði árás­armað­ur­inn í íbúð sem lög­reglan hafði fylgst með á Norð­ur­brú. Þegar hann varð lög­reglu var hóf hann skot­hríð á lög­reglu­menn sem felldu hann skömmu síð­ar. Lög­reglan telur að sami maður hafi verið að verki í báðum árás­unum og að ódæð­is­menn­irnir séu ekki fleiri. Hún lagði líka áherslu á að íbúar Kaup­manna­hafnar væru algjör­lega frjálsir ferða sinna þrátt fyrir mik­inn við­búnað lög­reglu.

Minnir á Charlie Hebdo-árás­ina



Árás­irnar í Kaup­manna­höfn hafa verið settar í sam­hengi við árás­irnar á höf­uð­stöðvar franska skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo í síð­asta mán­uði. Þar lét­ust tólf, þar á meðal nokkrir af fræg­ustu skop­mynda­teiknurum blaðs­ins. Árás­ar­menn­irnir voru tveir bræð­urnSaid Kou­achi og Cherif Kou­achi. Þeir réð­ust sér­stak­lega á blað­ið, og ákveðna starfs­menn þess, vegna teikn­inga sem það hafði birt af Múhammeð spá­manni.

Teikningar Charlie Hebdo af Múhameð spámanni hafa valdið mikilli ólgu víðsvegar um heiminn. Teikn­ingar Charlie Hebdo af Múhameð spá­manni hafa valdið mik­illi ólgu víðs­vegar um heim­inn.

Maður sem sagð­ist vera vit­orðs­maður bræðranna, Ame­dy Couli­ba­ly, myrti síðar lög­reglu­konu í Par­ís. Hann réðst síðar inn í verslun sem rekin er af gyð­ingum í aust­ur­hluta Par­ísar og hélt þeim sem þar voru fyrir í gísl­ingu. Couli­baly var felldur í áhlaupi lög­reglu en áður hafði hann drepið fjóra gísla. Bræð­urnir voru líka drepnir í áhlaupi lög­reglu sama dag.

#cphs­hoot­ing Tweets

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None