Um ellefu milljarðar greiddir inn á lán undir hatti „Fyrstu fasteignar“ á tveimur árum

Úrræði sem stjórnvöld kynntu fyrir fyrstu fasteignakaupendur, og tryggði þeim skattfrjálsa ráðstöfun séreignar inn á húsnæðislán, fór hægt af stað. Eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á hefur nýting á því hins vegar margfaldast.

Úrræðið var kynnt 2016, af Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni, og tók gildi um mitt ár 2017.
Úrræðið var kynnt 2016, af Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni, og tók gildi um mitt ár 2017.
Auglýsing

Alls hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið „Fyrsta fast­­­eign“ greitt inn á lán sín eða borgað í útgreiðslu á útborgun fyrir íbúð 16,5 millj­­­arða króna frá því að úrræðið tók gildi. um 9,5 millj­­­arðar króna hafa verið nýttir til að greiða inn á lán og um sjö millj­­­arðar króna í útgreiðslu. 

Alls hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið „Fyrsta fast­­­eign“ greitt inn á lán sín eða borgað í útgreiðslu á útborgun fyrir íbúð 10,5 millj­­­arða króna frá því að úrræðið tók gildi. um 5,9 millj­­­arðar króna hafa verið nýttir til að greiða inn á lán og tæp­­­lega 4,6 millj­­­arðar króna í útgreiðslu. 

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarn­ann.

Sam­­­­­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­­­­­­­­­eign­­­­­ar­líf­eyr­is­­­­­sparnað til að safna fyrir inn­­­­­­­­­borgun á fyrstu íbúð­­­­­ar­­­­­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­­­­­greindum hætti sam­­­­­kvæmt skil­­­­­málum „Fyrstu fast­­­­­eign­­­­­ar“.

Far­ald­ur­inn jók nýt­ingu mikið

Úrræðið hefur staðið til boða frá árinu 2017. Framan af var það ekki nýtt mikið en nýt­ingin tók veru­lega við sér þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, vextir lækk­uðu skarpt og fram­boð af hús­næð­is­lánum á skap­legum kjörum jókst mik­ið.

Auglýsing
Á árinu 2020 rúm­lega tvö­fald­að­ist upp­hæðin sem var notuð til að greiða inn á lán eða í útgreiðslu undir hatti „Fyrstu fast­­eign­­ar“ úr 5,2 í 10,5 millj­arða króna. Í fyrra jókst hún um enn hærri upp­hæð, sex millj­arða króna, og stendur nú, líkt og áður sagði, í 16,5 millj­örðum króna. Rúm­lega tvær af hverjum þremur krónum sem nýttar hafa verið í úrræð­inu hafa því verið nýttar á árunum 2020 og 2021. 

Á sama tíma hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 27 pró­sent. 

Langt frá settu mark­miði

Þegar úrræðið „Fyrsta fast­­eign“ var kynnt í Hörpu um miðjan ágúst 2016 af þáver­andi ráða­­­­­mönnum þjóð­­­­­ar­innar kom fram í glæru­kynn­ingu að um 50 millj­­­­­arðar króna myndu rata í inn­­­­­greiðslur á hús­næð­is­lánum vegna „Fyrstu fast­­­­­eign­­­­­ar“ á tíu árum eftir að úrræðið tæki gild­i. 

Sam­­­­­kvæmt kynn­ing­unni áttu um 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið á fyrstu árum þess. Þá var lagt upp með að árlega myndu um tvö þús­und manns mæt­­­­­ast í hóp þeirra sem eiga kost á því að nýta sér úrræð­ið.

Í dag, þegar gild­is­tími úrræð­is­ins er næstum hálfn­aður hafa 17.347 nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ og heild­ar­upp­hæðin sem ráð­stafað hefur verið undir hatti úrræð­is­ins 16,5 millj­arðar króna, eða þriðj­ungur þeirrar upp­hæðar sem ráða­menn kynntu að yrðu greiddar inn á hús­næð­is­lán innan þess. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent