Metávöxtun hjá íslenskum hlutabréfasjóðum

Samhliða sögulegri hækkun hlutabréfaverðs hér á landi hefur 12 mánaða ávöxtum 13 íslenskra hlutabréfasjóða verið með mesta móti. Virði tveggja sjóðanna hefur meira en tvöfaldast.

Kauphöllin ný
Auglýsing

Að með­al­tali hefur ávöxtun íslenskra hluta­bréfa­sjóða numið 74 pró­sentum á síð­ustu 12 mán­uð­um. Ávöxtun allra sjóð­anna hefur verið nokkuð yfir 50 pró­sent, en tveir sjóðir hafa meira en tvö­fald­ast í virði.

Á vef Keld­unnar má sjá 12 mán­aða ávöxtun 13 íslenskra hluta­bréfa­sjóða. Sjóð­ur­inn Akta Stokkur var með mestu ávöxt­un­ina, en hún nam 117 pró­sent­um. Ávöxt­unin var næst­hæst hjá hluta­bréfa­sjóðnum IS EQUUS frá Íslands­bréf­um, en virði hans hefur hækkað um 110 pró­sent.

Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hækkað um 57 pró­sent, en líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur hún hækkað hratt og nær sam­fellt frá upp­hafi far­ald­urs­ins í mars í fyrra. Sam­bæri­legur vöxtur hefur ekki sést á hluta­bréfa­mörk­uðum hér­lendis eftir fjár­mála­hrun­ið.

Auglýsing

Hækk­un­ina má að miklu leyti rekja til vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans í byrjun far­ald­urs­ins. Með þeim jókst hvat­inn til að fjár­festa í hluta­bréf­um, ann­ars vegar vegna þess að lán­töku­kostn­aður hafði minnkað og hins vegar vegna þess að spari­fjár­eig­endur þyrftu að ráð­ast í áhættu­sam­ari fjár­fest­ingar til að við­halda sömu ávöxtun á fjár­magn­inu sínu.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Nasdaq

Sama þróun hefur átt sér stað á öðrum Vest­ur­lönd­um, þar sem rík­is­stjórnir og seðla­bankar hafa gripið til marg­vís­legra aðgerða sem miða að því að auka magn lausa­fjár í umferð til þess að sporna gegn nei­kvæðum áhrifum far­ald­urs­ins á fjár­mála­kerf­ið. Á síð­ustu 12 mán­uðum hefur S&P 500 hluta­bréfa­vísi­talan í Banda­ríkj­unum hækkað um þriðj­ung, en svip­aða hækkun má einnig sjá hjá öðrum hluta­bréfa­vísi­tölum um allan heim.

Allir íslensku hluta­bréfa­sjóð­irnir hafa skilað hærri ávöxtun en úrvals­vísi­talan á síð­ustu tólf mán­uð­um. Sjóð­ur­inn Stefnir ÍS-15 skil­aði minnstu ávöxt­un­ina, en hún nam 58 pró­sentum á árs­grund­velli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent