Miðstjórn ASÍ fer fram á rannsókn á ríkisstuðningi við fyrirtæki í faraldrinum

Miðstjórn ASÍ krefst þess að meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðningsúrræði til fyrirtækja vegna áhrifa faraldursins verði rannsökuð. Dæmi séu um að fyrirtæki séu „beinlínis að greiða út arð fyrir skattfé“.

Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands.
Auglýsing

Mið­stjórn Alþýðu­sam­band Íslands krefst þess að fram fari rann­sókn á með­ferð opin­berra fjár­muna í tengslum við stuðn­ings­úr­ræði til fyr­ir­tækja vegna efna­hags­legra áhrifa COVID- far­ald­urs­ins. Þetta kemur fram í ályktun sem mið­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í dag og segir þar að það sé „eðli­leg og rétt­mæt krafa að þessir þættir verði rann­sak­að­ir“, enda hafi óheyri­legum fjár­munum verið veitt til stuðn­ings fyr­ir­tækja.

„Sum þeirra voru sann­ar­lega í brýnni þörf, en nú er að koma á dag­inn að önnur voru það ekki. Þá stendur upp á stjórn­völd að skýra hvers vegna skil­yrði voru sett gagn­vart sumum stuðn­ings­úræð­um, en öðrum ekki og hvers vegna háar girð­ingar eru reistar gagn­vart ein­stak­lingum í neyð, en ekki fyr­ir­tækj­u­m,“ segir í álykt­un­inni.

Í henni er bent á að Alþýðu­sam­bandið hafi farið fram á það, þegar „rík­is­hirsl­urnar voru opn­aðar til að veita fyr­ir­tækjum rík­is­stuðn­ing af óþekktri stærð“ í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins fyrir tæpum tveimur árum síð­an, að reist yrðu skil­yrði fyrir slíkum stuðn­ingi.

Auglýsing

„Meðal ann­ars lagði ASÍ áherslu á að fyr­ir­tækjum yrði gert skylt að nýta eigin bjargir áður en til stuðn­ings kæmi, að fyr­ir­tæki und­ir­gengjust skil­yrði um að greiða ekki út arð næstu tvö árin eftir fyr­ir­greiðslu eða nýta aðrar leiðir til að taka fé úr fyr­ir­tækj­unum og að fyr­ir­tæki eða eig­endur þeirra væru ekki skráð í skatta­skjól. Að auki krafð­ist ASÍ þess að laun æðstu stjórn­enda fyr­ir­tækja sem fengju aðstoð væru ekki óhóf­leg sam­an­borið við laun almenns starfs­fólks. Sem sagt, aðstoðin yrði neyð­ar­að­stoð en ekki til þess að fyr­ir­tækja­eig­endur gætu makað krók­inn,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­inn­ar.

Mið­stjórn ASÍ bendir á að ein­ungis hafi verið reist skil­yrði fyrir stuðn­ingi á grund­velli laga um hluta­bótalið­ina svoköll­uðu, en að aðrir styrkir og stuðn­ingur til fyr­ir­tækja hafi að mestu eða öllu leyti verið án skil­yrða. „Þetta veldur því að nú eru dæmi um fyr­ir­tæki sem eru bein­línis að greiða út arð fyrir skatt­fé,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­inn­ar.

Þar segir enn fremur að ströng skil­yrði séu sett við „allri aðstoð sem ein­stak­lingar njóta þegar í harð­bakk­ann slær“ og að það eigi jafnt við um atvinnu­leys­is­bæt­ur, fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­lag­anna, almanna­trygg­ingar og önnur vel­ferð­ar­úr­ræði.

„En þegar kemur að fyr­ir­tækjum er nálg­unin önn­ur. Þótt enn sjái ekki fyrir end­ann á krepp­unni, ber­ast þegar fréttir af launa­hækk­unum æðstu stjórn­enda, bónus­kerfum og gríð­ar­legri arð­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja og ýmissa ann­arra fyr­ir­tækja,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­inn­ar, sem telur sem áður segir bæði eðli­legt og rétt­mætt að stjórn­völd láti ráð­ast í rann­sókn á með­ferð opin­berra fjár­muna í tengslum við stuðn­ings­úr­ræði sem komið var á vegna far­ald­urs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent