Minni stuðningur við ríkisstjórnina nú en þegar hún var fyrst mynduð

Þegar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var fyrst mynduð studdu rúmlega 74 prósent landsmanna hana. Nú, þegar sú ríkisstjórn er að byrja nýja vegferð, mælist stuðningurinn töluvert minni þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir hafi bætt við sig þingmönnum.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem mynduð var eftir kosningarnar 2017. Ljóst er að hún verður ekki eins skipuð nú og þá, enda tveir þeirra sem þá settust í ráðherrastóla ekki lengur á þingi.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem mynduð var eftir kosningarnar 2017. Ljóst er að hún verður ekki eins skipuð nú og þá, enda tveir þeirra sem þá settust í ráðherrastóla ekki lengur á þingi.
Auglýsing

Í fyrstu mæl­ingu Gallup eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sem sam­anstendur af Vinstri græn­um, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, var mynduð síðla árs 2017 mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 74,1 pró­sent. Hann dal­aði svo hægt og rólega með hverri könn­un­inni og var kom­inn undir 50 pró­sent í júlí 2018. 

Í nýaf­stöðnum kosn­ingum hélt rík­is­stjórnin samt sem áður velli og bætti við sig þing­mönn­um. Vinstri græn töp­uðu fylgi og fengu þremur þing­mönnum færri en flokk­ur­inn fékk 2017, þótt eig­in­lega hafi þau ein­ungis tapað einum þing­manni frá því sem var við lok síð­asta kjör­tíma­bils þar sem tveir höfðu þegar yfir­gefið þing­flokk­inn vegna and­stöðu við rík­is­stjórn­ar­sam­starf­ið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði smá­vægi­legu fylgi en hélt sínum þing­manna­fjöldi, og bætti svo við sig einum nýjum eftir kosn­ingar þegar Birgir Þór­ar­ins­son flutti sig þangað úr Mið­flokkn­um. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem bætti við sig fylgi og þing­mönnum hans fjölg­aði um fimm. 

Auglýsing
Í fyrstu könnun Gallup á fylgi flokka eftir nýliðnar kosn­ing­ar, sem birt var í vik­unni, mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 62 pró­sent. Það er minni stuðn­ingur en hún hafði í upp­hafi starfs­tíma síns eftir kosn­ing­arnar 2017 en meiri en sá stuðn­ingur sem mæld­ist við hana nokkrum dögum fyrir síð­ustu kosn­ing­ar, þegar 52,7 pró­sent lands­manna sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina. Stuðn­ingur við hana hafði þá ekki mælst minni síðan í mars 2020, við upp­haf COVID-far­ald­urs­ins. 

Stjórn­ar­sátt­máli mögu­lega kynntur í næstu viku

Horfa ber þó til þess að enn á eftir að kynna stjórn­ar­sátt­mála stjórn­ar­inn­ar. Í vik­unni stað­festu for­menn allra stjórn­ar­flokk­anna að vinna við gerð hans væri langt kom­inn og að stefnt væri að því að mynda nýja rík­is­stjórn í næstu viku. 

For­sæt­is­ráð­herra stað­­festi þetta í sam­tali við Kjarn­ann en hún sagði þó að óvissa með taln­ingu í Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi hefði sett svip sinn á við­ræð­­urn­­ar. 

Hún nefndi enn fremur að þetta væru þrír ólíkir flokkar og auð­vitað ekki með sömu stefn­u­­skrá. „Það er krefj­andi verk­efni að búa til stjórn­­­ar­sátt­­mála þó að við séum búin að vinna lengi sam­­an. Svo þekkj­umst við nátt­úru­­lega miklu betur en fyrir fjórum árum. Við vitum hvar pytt­irnir eru.“

Búist er við breyt­ingu á verk­efnum ráðu­neyta og jafn­vel þeim mögu­leika að ráðu­neytum verði fjölg­að. Þá hafa, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, verið ræddir ýmsir mögu­leikar um það hvernig ráð­herra­stólum verði skipt milli stjórn­ar­flokk­anna.

Litlar breyt­ingar á fylgi flokka

Könnun Gallup, sem  gerð var 4. til 31. októ­ber og var með heild­ar­úr­taks­stærð upp á 8.899 og þátt­töku­hlut­fall var 50,6 pró­sent, sýndi ekki miklar breyt­ingar á sam­eig­in­legu fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Alls segj­ast 53,4 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa þá í dag en flokk­arnir fengu sam­an­lagt 54,3 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í lok sept­em­ber. 

Sú breyt­ing verður á fylgi þeirra að Vinstri græn bæta lít­il­lega við sig en Sjálf­stæð­is­flokkur tapar fylgi. Breyt­ing­arnar eru þó það litlar að þær eru nán­ast innan skekkju­marka. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur í stað. 

Hjá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum eru einu mark­verðu breyt­ing­arnar frá síð­ustu kosn­ingum þær að Píratar bæta við sig fylgi en Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins dala lít­il­lega. 

Þó ber að hafa það í huga að Píratar hafa haft til­hneig­ingu til að mæl­ast með meira fylgi í könn­unum en þeir fá í kosn­ingum og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær oft meira upp úr kjör­köss­unum en kann­anir benda til. Ástæð­una má rekja til þess að vænt­an­legir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks skila sér betur á kjör­stað en þeir sem segj­ast ætla að kjósa Pírata í könn­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent