Munur á afstöðu til umræðu um #Metoo eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk styður

Konur, ungt fólk og háskólamenntaðir eru mun jákvæðari í garð umræðunnar um #Metoo en karlar, eldra fólk og þeir sem hafa mest lokið grunnskólaprófi. Heilt yfir hefur jákvæðnin þó dregist saman síðan 2018.

Metoo
Auglýsing

Hlut­fall þeirra sem lands­manna sem telja að umræða um #Metoo-hreyf­ing­una sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag hefur dreg­ist umtals­vert saman frá árinu 2018, þegar fyrsta bylgja hennar reið yfir land­ið. Þá sögð­ust 70,5 pró­sent aðspurðra telja hana jákvæða en í nýrri könnun Mask­ínu, sem fram­kvæmd var núna í jan­ú­ar, mæld­ist það hlut­fall 60,4 pró­sent. Mest fjölgar í hópi þeirra sem hafa ekki afger­andi skoðun á umræð­unni en þeim sem telja hana nei­kvæða fjölgar úr 12,9 í 15,5 pró­sent.

Nokkuð afger­andi munur er á afstöðu eftir því hvaða stjórn­mála­flokk aðspurðir í könn­un­inni myndu kjósa ef kosið yrði í dag. Kjós­endur Mið­flokks­ins eru nei­kvæð­astir í garð umræð­unnar um #Metoo-hreyf­ing­una og ein­ungis 19,5 pró­sent þeirra telja hana jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Flokks fólks­ins skera sig einnig úr en rúm­lega 38 pró­sent þeirra telja umræðu um #Metoo-hreyf­ing­una jákvæða. 

Auglýsing
Flestir vænt­an­legir kjós­endur Pírata (86,4 pró­sent) og Sam­fylk­ing­ar­innar (83,2 pró­sent) telja umræð­una jákvæða og kjós­endur Vinstri grænna (77,6 pró­sent), Sós­í­alista­flokks Íslands (72,5 pró­sent) og Við­reisnar (72,5 pró­sent) eru ekki langt und­an. Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru svo sér á báti á miðju veg­ar, en 54,8 pró­sent þeirra telja að umræðan um #Metoo-hreyf­ing­una sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag.  

Menntun virð­ist líka skipta umtals­verðu máli sem breyta þegar við­horf til #Metoo-hreyf­ing­ar­innar er skoð­að. Þannig segj­ast 74,1 pró­sent allra svar­enda sem eru með háskóla­gráðu að þeir telji umræðu um hana jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag en ein­ungis 48,3 pró­sent þeirra sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu mennt­un. Á meðal þeirra sem hafa lokið fram­halds­skóla­prófi eða iðn­menntun mælist jákvæðnin í garð #Metoo-um­ræð­unnar 57,4 pró­sent. 

Nokkuð afger­andi munur er á afstöðu kynj­anna til máls­ins, en 54,3 pró­sent karla segj­ast telja umræð­una jákvæða fyrir íslenskt sam­fé­lag á meðan að 66,9 pró­sent kvenna eru á þeirri skoð­un.

Mun­ur­inn á afstöðu kyn­slóða er einnig nokkuð skýr, sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­unar Mask­ínu. Þannig telja 71,9 pró­sent aðspurðra í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára að umræðan um #Metoo-hreyf­ing­una sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag en 51 pró­sent þeirra sem eru 60 ára og eldri. 

Könn­unin fór fram dag­ana 14. til 19. jan­úar 2022 og voru svar­endur 815 tals­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent