„Nauðsynlegt“ að fá betra mat á umhverfisáhrifum nýrra virkjana

Varaformaður Viðreisnar segir að sátt þurfi að vera um orkunýtingu hérlendis til að útflutningur á orku með sæstreng yrði vel heppnaður. Til þess að ná slíkri sátt þyrfti að meta umhverfisáhrif nýrra virkjana með skipulegum hætti.

Daði Már Kristófersson, hagfrræðiprófessor við HÍ og varaformaður Viðreisnar
Daði Már Kristófersson, hagfrræðiprófessor við HÍ og varaformaður Viðreisnar
Auglýsing

Ábat­inn af útflutn­ingi íslenskrar orku til ann­arra landa gæti verið veru­leg­ur, en til þess að hann sé vel heppn­aður þarf sátt að ríkja um nýt­ingu orkunnar hér­lendis og skipt­ingu ábatans af útflutn­ingn­um. Þetta skrifar Daði Már Krist­ó­fers­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands og vara­for­maður Við­reisn­ar, í grein sinni í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Stærri mark­aður og betri nýt­ing með útflutn­ingi

Í grein sinni segir Daði Már að kost­irnir við að flytja út raf­orku væru marg­þætt­ir. Fyrir það fyrsta jyk­ist verð­mæti raf­orku­fram­leiðsl­unnar hér­lend­is, þar sem fleiri væru til­búnir að greiða fyrir hana, en auk þess yrði nýt­ing orkunnar mun betri en hún er þessa stund­ina.

Hann segir að lokuð raf­orku­kerfi, líkt og það íslenska, þurfi að fram­leiða umframorku svo að nægi­legt fram­boð verði tryggt fyrir ófyr­ir­sjá­an­legum sveiflum í eft­ir­spurn. Með útflutn­ingi væri þó hægt að selja þessa umframorku þegar hennar er ekki þörf inn­an­lands.

Auglýsing

Því til stuðn­ings bendir Daði á bætta nýt­ingu á raf­orku í Sví­þjóð og Nor­egi, en bæði löndin reiða sig mikið á raf­orku sem fram­leidd er með vatns­afli, líkt og Ísland, og flytja út ork­una sína til ann­arra landa.

Grund­völlur fyrir aukna vind- og sól­ar­orku­fram­leiðslu

Til við­bótar við stærri markað og betri nýt­ingu nefnir Daði einnig að útflutn­ingur á vatns­afli geti búið til grund­völl fyrir aðra umhverf­is­væna orku­fram­leiðslu.

Sam­kvæmt honum er gjarnan erfitt að reiða sig á ýmsum grænum orku­gjöf­um, líkt og vind­orku og sól­ar­orku, þar sem orkan er ekki alltaf til staðar og þegar hún er það er fram­leiðslu­getan ósveigj­an­leg. Með meiri inn­flutn­ingi á stöðugri og sveigj­an­legri orku, líkt og vatns­aflsorku, væri hins vegar kom­inn grund­völlur fyrir fram­leiðslu slíkrar orku.

Daði segir inn­flutn­ing Dana á norskri vatns­aflsorku hafi verið lyk­il­for­senda fyrir upp­bygg­ingu vind­orku þar í landi, en án inn­flutn­ings­ins væru lík­lega færri vind­myllur í Dan­mörku.

Sátt um virkj­anir og skipt­ingu ábatans nauð­syn­leg

Hins vegar bendir Daði á að ábat­inn af útflutn­ingi raf­orku færi eftir því hversu mikið yrði fram­leitt af henni hér­lendis og að aukin fram­leiðsla fæli í sér rask og umhverfis­kostn­að. Sam­kvæmt honum þyrfti að meta þennan umhverfis­kostnað með skipu­legum hætti og bera hann saman við tekju­mögu­leik­ana sem nýjar virkj­ana­fram­kvæmdir fælu í sér. Hann segir núver­andi mat á umhverfis­kostn­aði virkj­ana vera „óbeint og því miður of póli­tískt.“

Daði segir að sátt þurfi að vera um þá orku­nýt­ingu sem er æski­leg ef flytja ætti raf­ork­una út. Til þess að ná þeirri sátt þurfi að setja í lög að mat á umhverfis­kostn­aði verði bor­inn saman við væntan hagnað á nýjum virkj­un­um.

Til við­bótar segir Daði að tryggja þurfi sátt um hvernig ábat­anum af útflutn­ingi orkunnar yrði skipt á milli lands­manna. Tryggja þurfi að neyt­end­ur, sem beri skarðan hlut frá borði vegna hærra raf­orku­verðs, fái hagn­að­inn í sinn vasa. „Ekki má end­ur­taka mis­tökin sem gerð hafa verið í annarri auð­linda­nýt­ingu á Íslandi þar sem ábat­inn fer til fárra,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Daða Más í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent