Nefnd forsætisráðherra segir alla þrjá umsækjendur vera hæfa til að dæma við MDE

Þrjár umsóknir bárust frá íslenskum lögfræðingum um stöðu dómara við Mannréttindadómstól Evrópu og nefnd hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að þeir séu allir hæfir í starfið. Stjórnarformaður Landsvirkjunar er á meðal umsækjenda.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Auglýsing

Fimm manna nefnd sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði til að leggja mat á þrjá umsækj­endur um stöðu dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu (MDE) hefur lokið störf­um. Nið­ur­staða hennar er sú að allir umsækj­end­urnir þrír sem sótt­ust eftir til­nefn­ingu telj­ist hæfir til að vera verða til­nefndir af hálfu Íslands. 

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að umsækj­endum sem nefndin leggur til að til­nefnd verði sem dóm­ara­efni „skyldi ekki raðað inn­byrðis og skyldu ekki sæta frek­ari sam­an­burði á hæfn­i.“

Þau sem sóttu um að vera til­nefnd sem dóm­ara­efni af Íslands hálfu eru Jónas Þór Guð­munds­son, hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir, lands­rétt­ar­dóm­ari og rann­sókn­ar­pró­fessor og Stefán Geir Þór­is­son, hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur.

Þing Evr­­ópu­ráðs­ins tekur ákvörðun um það hvert þeirra verður fyrir val­inu sem íslenski dóm­­ar­inn við rétt­inn, en Evr­­ópu­ráðið fór þess á leit við íslensk stjórn­­völd að þau myndu til­­­nefna þrjú dóm­­ara­efn­i. 

Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll Evr­­ópu fjallar um mál sem til hans er vísað af ein­stak­l­ingum og samn­ings­að­ilum vegna meintra brota á ákvæðum mann­rétt­inda­sátt­­mála Evr­­ópu eða samn­ings­við­aukum við hann. Dóm­­stóll­inn er skip­aður einum dóm­­ara frá hverju samn­ings­­ríkja.

Auglýsing
Róbert Spanó hefur verið íslenski dóm­­ar­inn við rétt­inn allt frá árinu 2013. Hann var kjör­inn for­­seti MDE á vor­­dögum 2020, en kjör­­tíma­bili hans sem dóm­­ara við MDE lýkur þann 31. októ­ber næst­kom­andi.

Trún­að­ar­maður Sjálf­stæð­is­flokks á meðal umsækj­enda

Jónas Þór Guð­­munds­­son er  hæsta­rétt­­ar­lög­­maður er núver­andi stjórn­­­ar­­for­­maður Lands­­virkj­unar og hefur verið allt frá árinu 2014. Hann er einnig fyrr­ver­andi for­­maður kjara­ráðs og hefur verið full­­trúi Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins í þessum emb­ætt­um og hefur gegnt marg­vís­­legum trún­­að­­ar­­störfum fyrir flokk­inn, sér­stak­lega eftir að Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í hon­um. Jónas gegndi for­­mennsku í stjórn Lög­­­manna­­fé­lags Íslands um tíma.

Jónas Þór Guðmundsson.

Oddný Mjöll Arn­­ar­dóttir er dóm­­ari við Lands­rétt. Hún er einnig rann­­sókna­­pró­­fessor við Háskóla Íslands og hefur verið pró­­fessor við laga­­deild skól­ans frá 2012, en var þar áður pró­­fessor við laga­­deild Háskól­ans í Reykja­vík frá 2006. Ef hún hreppir emb­ættið yrði hún fyrsta konan til þess að verða sett dóm­­ari við MDE fyrir hönd Íslands.

Stefán Geir Þór­is­­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður hefur reynslu af dóm­­störf­um, en hann er um þessar mundir vara­­dóm­andi við end­­ur­­upp­­­töku­­dóm. Áður var Stefán Geir skip­aður dóm­­ari við Alþjóð­­lega íþrótta­­dóm­stól­inn (CAS) í borg­inni Laus­anne í Sviss til fjög­­urra ára frá 1. jan­úar 2017. Stefán hefur einnig sinnt trún­­að­­ar­­störfum fyrir Knatt­­spyrn­u­­sam­­band Íslands um ára­bil og sat meðal ann­­ars í stjórn KSÍ frá 2007-2009.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent