Neyslugleði rússneskra ferðamanna mun minni en áður

Fyrir níu árum síðan eyddi hver rússneskur ferðamaður um helmingi meiri pening en ferðamaður frá öðrum þjóðernum. Á síðustu árum hefur hins vegar dregið hratt úr neyslu þeirra og eyða þeir nú minna en aðrir hérlendis.

7DM_4114_raw_1607.JPG
Auglýsing

Ferða­menn frá Rúss­landi, sem voru áður lík­legir til að verja miklum fjár­munum hér­lend­is, hafa á síð­ustu árum dregið úr neyslu sinni, ef miðað er við aðra ferða­menn. Neysla hvers rúss­nesks ferða­manns var að með­al­tali 13 pró­sentum minna en með­al­neysla ferða­manna frá öðrum þjóð­ernum í fyrra. Þetta kemur fram þegar tölur frá Rann­sókna­setri versl­un­ar­innar eru bornar saman við far­þega­tölur frá Ferða­mála­stofu.

Sam­kvæmt töl­unum hafa Rússar verið lít­ill hluti af ferða­mönnum hér­lend­is, en þeir hafa verið innan við eitt pró­sent af heild­ar­fjöld­anum á hverju ári síð­ustu níu árin. Aftur á móti voru þeir neysluglað­ari en aðrir framan af, en árið 2013 varði hver rúss­neskur ferða­maður að með­al­tali 180 þús­undum króna hér á landi, á meðan aðrir ferða­menn vörðu að með­al­tali um 116 þús­undum króna.

Auglýsing

Á síð­ustu árunum fyrir heims­far­ald­ur­inn fór svo ferða­mönnum frá Rúss­landi að fjölga, en þeir voru mest rúm­lega 16 þús­und tals­ins árið 2019. Sam­hliða því hefur neysla á hvern ferða­mann hins vegar dreg­ist sam­an, miðað við tölur um korta­veltu þeirra, en fyrir þremur árum síðan mátti búast við að hver rúss­neskur ferða­maður eyddi að með­al­tali 140 þús­undum króna hér­lend­is. Þró­un­ina má sjá á mynd hér að neð­an.

Mynd: Kjarninn: Heimild: Ferðamálastofa, Rannsóknasetur verslunarinnar og Seðlabankinn.

Á síð­ustu tveimur árum hefur neysla hvers ferða­manns svo auk­ist tölu­vert, en í fyrra mátti búast við að hver þeirra eyddi um 188 þús­undum króna á land­inu. Neysla rúss­neskra ferða­manna í fyrra var hins vegar aðeins um 162 þús­und krón­ur, líkt og myndin að ofan sýn­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent