Nýsjálendingur prentaði minnstu borvél í heimi - og hún virkar!

drillfeatured2.jpg
Auglýsing

Nýsjá­lend­ing­ur­inn Lance Aber­net­hy, sem starfar sem við­gerð­ar­maður hjá verk­smiðju í Auckland, fékk flugu í höf­uðið á dög­unum og réðst í að þrí­vídd­ar­prenta minnstu bor­vél í heimi. Ekki nóg með það, heldur virkar bor­vélin líka eins og til var ætl­ast. Frétta­mið­ill­inn Quartz greinir frá upp­á­tæk­inu, en frétta­síðan 3dprin­t.com, sem sér­hæfir sig í fréttum af þrí­vídd­ar­prent­un­um, sagði fyrst frá mál­inu.

Aber­nethy not­aði bor­vél í fullri stærð, sem hann not­ast mikið við, sem eft­ir­mynd. „Ég reyndi að gera hana eins litla og mögu­legt er, og tróð íhlut­unum eins þröngt inn í bor­vél­ina og ég gat,“ er haft eftir upp­á­tækja­sama Nýsjá­lend­ingnum í umfjöllun 3dprin­t.com.

Hér má glögglega sjá hversu lítil borvélin er, og hvernig íhlutum hennar hefur verið komið fyrir. Hér má glögg­lega sjá hversu lítil bor­vélin er, og hvernig íhlutum hennar hefur verið komið fyr­ir­.

Auglýsing

Það tók um 25 mín­útur að þrí­vídd­ar­prenta bor­vél­ina, í þremur hlut­um. Fyrst var bor­vélin prentuð í tveimur helm­ing­um, og svo var lít­ill íhlutur prent­aður sem settur var framan á agn­arsmátt „vél­ar­hús­ið.“ Abern­athy not­aði svo litla raf­hlöðu úr heyrn­ar­tæki sem orku­gjafa og agn­arsmáan mótor og setti inn í prent­aða bor­vél­ina. Til að tengja saman vél­bún­að­inn not­aði hann svo vír úr snúru úr heyrn­ar­tól­um.

„Það tók mig um þrjá klukku­tíma að ­troða vél­bún­að­inum inn í bor­vél­ina. Vír­inn var alltaf að slitna þegar ég var að reyna að tengja íhlut­ina sam­an, og það var algjör martröð að halda þeim öllum á sínum stað án þess að klára raf­hlöð­una,“ segir Aber­nethy.

Bor­vélin er 17 milli­metrar á hæð­ina og 7,5 milli­metrar á breidd. Hún er með 0,5 milli­metra bor sem getur borað sig í gegnum mjúka mót­stöðu. „Ég hef séð myndir af bor­vél, sem taldar eru minnstu sinnar teg­undar í heim­in­um, en ég veit að mín er minni án þess að hafa fengið það stað­fest.“

Sjáið virkni bor­vél­ar­innar í mynd­band­inu hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None