Óheimilt verði að bjóða verðtryggð jafngreiðslulán lengur en 25 ár

sigmundur.jpg
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar hefur umsjón með vinnu sem miðar að því að banna verð­tryggð lán til neyt­enda með jöfnum greiðsl­um, til lengri tíma en 25 ára. Þá hefur rík­is­stjórnin hug á því að lengja lág­marks­tíma nýrra verð­tryggðra neyt­enda­lán í allt að 10 ár og að tak­mark­anir verði gerðar á veð­setn­ingu vegna verð­tryggrða lána. Þá er einnig stefnt að því að auka kerf­is­læga hvata til töku á óverð­tryggðum lánum frekar en verð­tryggð­um.

Þetta kemur fram í svari Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­ríðar Ingi­bjargar Inga­dótt­ur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem  birt var á vef Alþingis rétt í þessu. Hún beindi meðal ann­ars þeirri spurn­ingu til Sig­mundar Dav­íðs, hvenær áformað væri að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum að fullu. Í svar­inu kemur fram að unnið verði að því  í skrefum að draga úr vægi verð­trygg­ing­ar­innar á lána­mark­aði, en verk­efnið heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, og vel­ferð­ar­ráðu­neyti Eyglóar Harð­ar­dóttur einnig.

Spurn­ingar Sig­ríðar Ingi­bjargar og svör Sig­mundar Dav­íðs má sjá hér að neð­an.

Auglýsing

 1.     Hvað líður áformum og aðgerðum um afnám verð­trygg­ingar á neyt­enda­lán­um?

Unnið er eftir áætlun sem sam­þykkt var í rík­is­stjórn 9. maí 2014. Áætl­unin bygg­ist á nið­ur­stöðum sér­fræð­inga­hóps um afnám verð­trygg­ingar á nýjum neyt­enda­lán­um. Áætl­unin um næstu skref í aðgerðum er í fjórum lið­um:

a.    Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið mun hafa umsjón með vinnu við að óheim­ilt verði að bjóða neyt­endum verð­tryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára, að lág­marks­tími nýrra verð­tryggðra neyt­enda­lána verði lengdur í allt að 10 ár og að tak­mark­anir verði gerðar á veð­setn­ingu vegna verð­tryggðra íbúða­lána.

Í þing­mála­skrá er gert ráð fyrir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra leggi fram frum­varp til breyt­inga á lögum um vexti og verð­trygg­ingu á vor­þingi.

b.    Vel­ferð­ar­ráðu­neytið mun hafa umsjón, í fram­haldi af skýrslu verk­efn­is­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála, með aðgerðum til að auka hvata til töku og veit­ingar óverð­tryggðra lána.

Hugað er að aðgerðum til að auka hvata til töku og veit­ingar óverð­tryggðra lána í tengslum við viða­miklar breyt­ingar á fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála.

c.    ­For­sæt­is­ráðu­neytið mun skipa starfs­hóp um leiðir til að sporna gegn því að sjálf­virkar hækk­anir á vöru og þjón­ustu og teng­ing ýmissa skamm­tíma­samn­inga við vísi­tölu neyslu­verðs kyndi undir verð­bólgu.

Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður í júlí 2014. Gert er ráð fyrir að hann muni skila af sér á næstu vik­um.

d.    Ráð­herra­nefnd um úrlausnir í skulda­málum heim­il­anna mun skipa Verð­trygg­ing­ar­vakt til að tryggja sam­fellu í fram­gangi áætl­unar um afnám verð­trygg­ingar af nýjum neyt­enda­lán­um.

2.     Hvenær er áætlað að verð­trygg­ing á neyt­enda­lánum verði afnumin að fullu?

Meiri­hluti sér­fræði­hóps um afnám verð­trygg­ingar af nýjum neyt­enda­lánum lagði til að vinna við áætlun um fullt afnám yrði hafin eigi síðar en á árinu 2016 þegar reynsla yrði komin á þær breyt­ingar sem hóp­ur­inn taldi að gera ætti í fyrsta áfanga. Breyt­ingar í fyrsta áfanga fel­ast í að:

a.    ó­heim­ilt verði að bjóða neyt­endum verð­tryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára,

b.    lág­marks­tími nýrra verð­tryggðra neyt­enda­lána verði lengdur í allt að 10 ár,

c.    ­tak­mark­anir verði gerðar á veð­setn­ingu vegna verð­tryggðra íbúða­lána og

d.    hvatar auknir til töku og veit­ingar óverð­tryggðra lána.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None