Öllum kröfum ÁTVR gegn Sante og Bjórlandi vegna sölu áfengis í vefverslunum vísað frá

ÁTVR höfðaði mál á hendur tveimur vefverslunum sem selja íslenskum neytendum áfengi, taldi þær hafa brotið á einkarétti sínum til áfengissölu og vildi fá bótaskyldu viðurkennda. Dómurinn hafnaði öllum málatilbúnaði ríkisfyrirtækisins.

Ívar J. Arndal er forstjóri ÁTVR.
Ívar J. Arndal er forstjóri ÁTVR.
Auglýsing

Málum Áfeng­is- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) gegn vef­versl­unum sem selja áfengi til íslenskra neyt­enda, Sante og Bjór­landi, var í dag vísað frá dómi. Dóm­ar­inn í mál­unum féllst á allan mála­til­búnað lög­manna Sante og Bjór­lands en hafn­aði öllum mála­til­bún­aði ÁTVR.

Í öðru mál­inu var Arn­ari Sig­urðs­syni, eig­anda San­te, stefnt ásamt fyr­ir­tækj­unum Sante ehf. og San­tewines SAS. Í hinu var fyr­ir­tæk­inu Bjór­landi einu stefn­t. 

ÁTVR, sem er rík­is­fyr­ir­tæki, taldi að fyr­ir­tækin hafi brotið gegn áfeng­is­lögum með starf­semi sinni og brotið á einka­rétti sínum til smá­sölu á áfengi. Rík­is­fyr­ir­tækið vildi að Sante og Bjór­land myndu láta af við­skiptum með áfengi og að bóta­skylda fyr­ir­tækj­anna gagn­vart sér yrði við­ur­kennd. 

Sante og Bjór­land fóru bæði fram á að málum gegn sér yrði vísað frá dómi meðal ann­ars á þeim grund­velli að ÁTVR ætti ekki lögvarða hags­muni af úrlausn þess. Þá töldu lög­menn þeirra að grein­ar­gerð ÁTVR hefði ekki upp­fyllt kröfur rétt­ar­farslaga um skýr­leika. Auk þess hafði ÁTVR ekki sýnt fram á tengsl meintrar hátt­semi stefndu fyr­ir­tækj­anna tveggja við „ætlað skaða­verk eða leitt nokkrar líkur að tjóni sín­u.“

Ekki hlut­verk ÁTVR að hafa eft­ir­lit með einka­rétti

Í nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í dag í mál­unum tveimur kemur fram sam­hljóma nið­ur­staða. Þar er tekið undir sjón­ar­mið Sante og Bjór­lands um að ÁTVR hafi ekk­ert með svona mála­rekstur að gera.

Auglýsing
Lög feli ÁTVR það mark­mið að vinna gegn mis­notkun áfengis og tak­marka í því skyni aðgengi að og fram­boð á áfengi. „En þó að stefn­anda sé að lögum fal­inn einka­réttur eða einka­leyfi til smá­sölu á áfengi telst það ekki meðal verk­efna hans að við­halda einka­rétt­inum eða vernda hann með mál­sóknum fyrir dóm­stól­um. Allt eft­ir­lit sam­kvæmt lögum er falið öðrum stjórn­völd­um. Lög­gjaf­inn hefur þannig ákveðið í hvaða far­veg brot gegn einka­rétti stefn­anda eigi að fara og sú eft­ir­fylgni eða eft­ir­lit er ekki í höndum stefn­anda.“

ÁTVR sýndi ekki fram á tjón

Varð­andi við­ur­kenn­ingu á skaða­bóta­kröfu þá kemst dóm­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu að ÁTVR hafi ekki í mála­til­bún­aði sínum „freistað þess að upp­lýsa nánar eða leggja fram gögn um það tjón sem hann kveðst hafa orðið fyrir vegna hátt­semi stefnda […] Að mati dóms­ins skorti því veru­lega á að full­nægt sé þeim skil­yrðum sem gerð eru til sönn­unar á til­vist tjóns í málum sem höfðuð eru til við­ur­kenn­ingar á bóta­skyld­u“.

Til við­bótar tekur dóm­ur­inn fram að sam­kvæmt lögum um starf­semi ÁTVR eigi hún að vera sem hag­kvæmust og afla tekna sem nægi til að greiða rekstr­ar­kostn­aði og skila hæfi­legum arði til rík­is­sjóðs. „Fjár­mögnun stofn­un­ar­innar er þannig á grund­velli almennrar tekju­öfl­unar og arð­ur­inn er íslenska rík­is­ins, en ekki stefn­anda. Er því ekki unnt að líta svo á að stefn­andi, sem er rík­is­stofn­un, hafi af því fjár­hags­lega hags­muni að við­halda einka­rétti á sölu áfengis í smá­sölu enda er það lög­gjafans að ákveða fyr­ir­komu­lag á sölu áfengis í smá­sölu í land­in­u.“

Að end­ingu segir í dómunum að ann­markar og van­kantar á mála­til­bún­aði ÁTVR leiði til að leiði „hver og einn og allir í senn, til þess að óhjá­kvæmi­legt er að vísa máli þessu frá í heild sinni frá dómi“.

ÁTVR er gert að greiða Arn­ari Sig­urðs­syni, Sante ehf. og Sante SAS sam­tals 1.650 þús­und krónur í máls­kostnað og Bjór­landi 950 þús­und krón­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent