Pæling dagsins: Skemmir þverpólitísk samstaða?

11175758203_d4c884a4f0_z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í síð­ustu viku að áætlun um losun fjár­magns­hafta þyrfti að vera leyni­leg svo hún yrði ekki skemmd. Þessi leynd er svo mikil að ein­ungis mjög fámennur hópur í kringum stjórn­ar­herr­anna og innan Seðla­bank­ans hefur upp­lýs­ingar um hver áætl­unin er. Meira að segja þjóð­kjörnir þing­menn ann­arra flokka, sem sitja í sam­ráðs­hópi um afnám hafta, fá ekk­ert að vita. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur sá hópur ekki fundað einu sinni á þessu ári, á sama tíma og dig­ur­bark­legar yfir­lýs­ingar eru gefnar í fjöl­miðlum um skref í átt að afnámi hafta.

Í þessu sam­hengi er vert að minn­ast á að stærsta og mik­il­væg­asta ákvörðun sem tekin hefur verið varð­andi þrotabú föllnu bank­anna frá því að neyð­ar­lögin voru sett var sú að afnema svo­kallað sól­ar­lags­á­kvæði úr lögum um gjald­eyr­is­mál. Það var gert þann 9. mars 2013. Með því voru fjár­magns­höftin gerð ótíma­bundin í stað þess að þau ættu að renna út í lok árs 2013. Um þessa nið­ur­stöðu var þverpóli­tísk sátt og málið var afgreitt á innan við klukku­tíma í þing­inu.

Áð­ur, þann 20. des­em­ber 2012, hafði þverpóli­tísk nefnd full­trúa þing­flokka um afnám gjald­eyr­is­hafta ein­róma lagt þessa breyt­ingu til. Í kjöl­far breyt­ing­arn­ar, þann 5. apríl 2013, sendi sama nefnd bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manna stjórn­mála­flokk­anna þar sem hún sagði m.a. að höft ætti ekki að losa nema að til staðar væri heild­ar­lausn sem ógni ekki fjár­mála­stöð­ug­leika, að alls ótíma­bært væri að selja hluti í nýju bönk­un­um, að leita þyrfti lið­sinnis erlendra sér­fræð­inga til að tryggja nauð­syn­lega yfir­sýn yfir afnáms­ferlið og að tryggja þyrfti „sam­ráð milli­ þeirra aðila sem hafa þessi mál á sinni könn­u“.

Í þess­ari nefnd sátu sex manns og allir voru sam­mála. Á meðal þeirra eru jafn ólíkir aðilar og Hug­inn Freyr Þor­steins­son, fyrrum aðstoð­ar­maður Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, Tryggvi Þór Her­berts­son, verk­efna­stjóri Leið­rétt­ing­ar­inn­ar, og Sig­urður Hann­es­son, sem nú situr í fram­kvæmda­nefnd um afnám hafta og er einn helsti efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra.

Auglýsing

Pæl­ing dags­ins er þessi: Hvernig getur þverpóli­tískt sam­staða, sem sýnt hefur verið að hægt sé að ná, þar sem stjórn og stjórn­ar­and­staða tala einum rómi í stærsta hags­muna­máli þjóð­ar­innar skemmt fyr­ir?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None