Ríkisendurskoðun fáliðuð og getur ekki sinnt lögboðnu hlutverki

fjarmala-1.jpg
Auglýsing

Rík­is­end­ur­skoðun er fáliðuð og hefur ekki tök á því að skoða alla liði rík­is­reikn­ings árlega. Sam­kvæmt lögum er meg­in­verk­efni Rík­is­end­ur­skoð­unar að end­ur­skoða rík­is­reikn­ing. Rík­is­end­ur­skoðun getur því ekki sinnt lög­boðnu hlut­verki sínu miðað við þann stakk sem henni er sniðin í dag.

Þetta kemur fram í skýrsl­unni „End­ur­skoðun rík­is­reikn­ings 2013“ sem birt var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag.

Óvið­un­andi ástand



Í skýrsl­unni segir að „á und­an­förnum árum hefur áætlun Rík­is­end­ur­skoð­unar miðað að því að end­ur­skoða útgjalda­mestu fjár­laga­lið­ina til að meta rétt­mæti upp­lýs­inga um útgjöld í rík­is­reikn­ingi. Á yfir­stand­andi ári var áherslum breytt á þann veg að fjár­laga­liðir sem ekki höfðu verið end­ur­skoð­aðir í þrjú ár fengu meira vægi í end­ur­skoð­un­ar­á­ætlun árs­ins. Rík­is­end­ur­skoðun er fáliðuð og hefur ekki tök á að end­ur­skoða alla liði árlega. Þetta er að mati stofn­un­ar­innar óvið­un­andi ástand og nauð­syn­legt að henni verði gert kleift að sinna sínu lög­boðna hlut­verki að end­ur­skoða alla fjár­laga­liði rík­is­ins með­reglu­bundn­ari hætti en nú er mögu­leg­t“.

Þetta er að mati stofn­un­ar­innar óvið­un­andi ástand og nauð­syn­legt að henni verði gert kleift að sinna sínu lög­boðna hlut­verki að end­ur­skoða alla fjár­laga­liði rík­is­ins með­reglu­bundn­ari hætti en nú er mögulegt“

Auglýsing

Í skýrsl­unni tók Rík­is­end­ur­skoðun saman helstu athuga­semdir og ábend­ingar sem hún fann við end­ur­skoðun þeirra liða rík­is­reikn­ings sem hún náði að skoða vegna árs­ins 2013. Á meðal þeirra var að upp­gjöri rík­is­reikn­ings þurfi að breyta til sam­ræmis við við­ur­kenndar reikn­ings­skila­regl­ur, að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti beiti sér fyrir úttekt á tölvu­kerf­um, að fjár­sýsla rík­is­ins greini og leið­rétti við­skipta­kröfur og að aðgerða sé þörf til að bregð­ast við trygg­inga­fræði­legri stöðu A-deildar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, sem er nei­kvæð um mörg hund­ruð millj­arða króna.

Þá vill Rík­is­end­ur­skoðun að stofn­anir hins opin­bera ljúki við gerð eigna­skráa, að fram­setn­ing mark­aðra tekja í fjár­lögum og rík­is­reikn­ingi verði end­ur­skoð­uð, að Alþingi kanni mögu­leika á því að setja lög um skatt­styrki, að áætluð gjöld verði sér­greind í tekju­bók­haldi rík­is­ins og að umfjöllun um áhættu rík­is­stjóðs verði birt í skýr­ingum með rík­is­reikn­ingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None