Ríkisstjórnin getur ekki svarað því hvað felst í loforði sem sett er fram í stjórnarsáttmála

Í stjórnarsáttmálanum segir að skattmatsreglur verði endurskoðaðar til að koma í „veg fyrir óeðlilega og óheilbrigða hvata til stofnunar einkahlutafélaga“. Hvorki forsætis- né fjármála- og efnahagsráðuneytið geta svarað því hvað þetta þýðir.

Stjórnarsáttmálinn var kynntur 30. nóvember síðastliðinn.
Stjórnarsáttmálinn var kynntur 30. nóvember síðastliðinn.
Auglýsing

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar frá 30. nóv­em­ber segir að skatt­mats­reglur verði end­ur­skoð­aðar og að komið verði í veg fyrir „óeðli­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­fé­laga“.  Þar segir að enn fremur verði reglu­verk í kringum tekju­til­flutn­ing „tekið til end­ur­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar.“

Engar frek­ari skýr­ingar eru gefnar í sátt­mál­anum á því hvernig end­ur­mat á skatt­mats­reglum eigi að fara fram, hvaða óeðli­legu og óheil­brigðu hvata eigi að koma í veg fyrir né hvernig tryggja eigi að þeir sem hafi ein­göngu fjár­magnstekjur verði látnir greiða útsvar og þeirra mála sem er að finna á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar bera það með sér að fjalla um ofan­greind atriði.

Tók 28 daga að fá svar

Sem stendur er ekki starf­andi sér­stakur upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og því sendi Kjarn­inn fyr­ir­spurn þar sem óskað var frek­ari skýr­ingar á umræddri end­ur­skoð­un, og því hvaða óeðli­legu og óheil­brigðu hvata þyrfti að koma í veg fyr­ir, eða hvernig eigi að láta þá sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur greiða útsvar, til upp­lýs­inga­full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þann 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. Svar barst degi síð­ar, þar sem stað­fest var að fyr­ir­spurnin hafði fengið mála­núm­er, og í því stóð: „Um­rætt verk­efni í stjórn­ar­sátt­mála hefur verið skil­greint hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Erindi þitt er því hér með fram­sent þang­að.“

Auglýsing
Samkvæmt upp­lýs­inga­lögum er stjórn­valdi skylt að taka ákvörðun um hvort orðið sé við beiðni um upp­lýs­ingar svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá mót­töku hennar skal skýra frá ástæðu taf­anna og hvenær ákvörð­unar sé að vænta.

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið svar­aði Kjarn­anum nákvæm­lega viku eftir að fyr­ir­spurnin var send frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til þess, þann 11. jan­úar 2022. Í svar­inu sagði ein­fald­lega: „Ekki tekst að ljúka svari til þín fyrir til­skil­inn frest en ráðu­neytið stefnir að því að hafa lokið við að svara þér fyrir lok næstu viku.“

Þegar næstu viku lauk hafði ekk­ert svar borist og Kjarn­inn sendi ítrekun á ráðu­neytið 25. og 28. jan­ú­ar. Efn­is­legt svar barst loks mánu­dag­inn 31. jan­ú­ar, 28 dögum eftir að upp­runa­leg fyr­ir­spurn var send á for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.

Hluta fyr­ir­spurnar vísað aftur til ráðu­neytis sem gat ekki svarað henni

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sagði að unnið væri að því að skipta verk­efnum stjórn­ar­sátt­mál­ans niður á ráðu­neyt­in. „Ekki er komin end­an­leg mynd á útfærslu verk­efna, en gera má ráð fyrir að verk­efnið sem þú nefnir komi í hlut fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og e.t.v. í sam­vinnu við önnur ráðu­neyti. Ekki liggur fyrir mat á tekjum sem kunna að leiða af ein­stökum breyt­ing­um, enda skammt um liðið frá því að sátt­mál­inn var birt­ur.“

Þar sagði einnig að ráðu­neytið gæti ekki „svarað því hvaða hvata rík­is­stjórnin telur „óeðli­lega og óheil­brigða“, og þarf upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar eða eftir atvikum FOR [for­sæt­is­ráðu­neyt­ið] að með­höndla slíka fyr­ir­spurn.“

Vert er að ítreka að fyr­ir­spurn Kjarn­ans var upp­haf­lega send á for­sæt­is­ráðu­neytið sem beindi henni til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem segir nú að for­sæt­is­ráðu­neytið eigi að svara fyr­ir­spurn­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent