Segir rangt að telja aldraða vera byrði á samfélaginu

Búast má við að kostnaður hins opinbera vegna lífeyris muni lækka á næstu áratugum, þar sem lífeyrisþegar muni fá meira greitt í eftirlaun. Fyrrverandi fjármálaráðherra segir þetta sýna að aldraðir séu ekki byrði á samfélagið þegar allt er skoðað.

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Auglýsing

Kostn­aður almanna­trygg­inga vegna líf­eyris aldr­aðra mun lækka á næstu árum, að óbreyttum regl­um. Þetta segir Bene­dikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ing­ar.

Aldr­aðir greiða líka skatta

Í grein­inni segir Bene­dikt að oft sé talað um að hluti af vel­ferð­ar­byrð­inni svo­nefndu sé bæði kostn­aður við eft­ir­laun og umönnun aldr­aðra. Í því sam­hengi gleym­ist þó oft að líta á skatt­ana sem aldr­aðir greiða, en þannig standi þeir undir hluta af sam­fé­lags­kostn­að­in­um.

Sam­kvæmt útreikn­ingum Bene­dikts, sem byggja á skýrslu Talna­könn­unar um líf­eyr­is­kerfið fyrir Birtu líf­eyr­is­sjóð, hafa skatt­greiðslur aldr­aðra auk­ist umfram fólks­fjölgun á síð­ustu árum. Þær eru nú tæp­lega 15 pró­sent af heild­ar­skatt­greiðsl­um, en alls eru 16 pró­sent íbúa lands­ins á elli­líf­eyr­is­aldri. Til sam­an­burðar borg­uðu aldr­aðir aðeins átta pró­sent af heild­ar­skatt­tekjum árið 2005, þrátt fyrir að hafa verið 14 pró­sent af mann­fjöld­anum þá.

Auglýsing

Í fram­tíð­inni býst Bene­dikt svo við að skatt­greiðslur aldr­aðra muni aukast enn frekar, sam­hliða hækk­andi líf­eyr­is­tekjum þeirra. Því til stuðn­ings bendir hann á spá Talna­könn­unar um hlut­fall eft­ir­launa af launum lands­manna á næstu árum, en sam­kvæmt henni mun það vaxa hraðar heldur en hlut­fall aldr­aðra af íbúum lands­ins. Með þessu lækkar kostn­aður almanna­trygg­inga vegna líf­eyris aldr­aðra, að óbreyttum regl­um.

„Þetta sýnir tvennt,“ segir Bene­dikt í grein sinni. „Ann­ars vegar að líf­eyr­is­greiðslur eru orðnar mun meiri en áður var, en jafn­framt að aldr­aðir hafa með líf­eyr­is­sparn­aði lagt fram sinn skerf til þjóð­ar­bús­ins og rangt að telja þá byrði á sam­fé­lag­inu þegar allt er talið með.“

Afnám tekju­teng­ingar kostn­að­ar­samt

Bene­dikt fer einnig yfir fyrri útreikn­inga sína sem sýndu að afnám tekju­teng­ingar líf­eyr­is­greiðslna myndi kosta Trygg­inga­stofnun rík­is­ins (TR) 100 millj­arða króna. Hann segir töl­una vera þó nær 105 millj­örðum króna ef allir þeir sem eru með líf­eyr­is­rétt­indi fengi fullan líf­eyri frá TR og að 35 pró­sent þeirra fengju fulla heim­il­is­upp­bót.

Sam­kvæmt honum eru þessir útreikn­ingar þó ekki nákvæm­ir. Aftur á móti ættu þeir að gefa nokkra mynd af hugs­an­legum kostn­aði Trygg­inga­stofn­unar vegna þess. Hann segir svo líka að hluti af þess­ari við­bót­ar­fjár­hæð færi aftur til rík­is­ins í formi tekju­skatta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent