Segir skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað fasteignaverð

Seðlabankastjóri segir þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu vera meðal ástæðna þess að fasteignaverð hafi hækkað töluvert á síðustu misserum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Auglýsing

Ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar og hinna sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um að byggja ekki íbúða­hverfi á nýju landi er stór þáttur í nýlegri hækkun fast­eigna­verðs. Þetta sagði Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi bank­ans í gær.

Mikið var rætt um hraða hækkun fast­eigna­verðs á fund­in­um, en líkt og Kjarn­inn greindi frá á þriðju­dag­inn hefur verð á fast­eignum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um tæp 14 pró­sent á milli apr­íl­mán­aða 2020 og 2021. Þetta er mesta 12 mán­aða hækkun fast­eigna­verðs sem mæld hefur verið á svæð­inu síðan árið 2017.

Engin hús­næði­bóla enn

Sam­kvæmt nýjasta hefti Pen­inga­mála Seðla­bank­ans hefur hús­næð­is­verð þó hækkað minna en búist var við, ef miðað er við sögu­legt sam­band þess við ráð­stöf­un­ar­tekjur og raun­vexti. Skuld­setn­ing heim­il­anna væri ekki óhóf­leg og því væri ekki um bólu­myndun að ræða enn sem komið er.

Auglýsing

Á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi sagði Ásgeir að nýleg hækkun hús­næð­is­verðs væri að hluta til drifin áfram af vaxta­lækk­unum sem bank­inn þurfti að ráð­ast í til að bregð­ast við efna­hags­á­fall­inu sem fylgdi heims­far­aldr­inum í fyrra, líkt og önnur lönd. Því gæti hún mögu­lega verið byggð á tíma­bundnum þátt­um.

Hins vegar sagði hann að aðrir þættir hefðu einnig jákvæð áhrif á fast­eigna­verð. „Mikil hækkun fast­eigna­verðs sem hefur átt sér stað er að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skorti á fram­boði og skipu­lags­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það er alveg klár­t,“ sagði Ásgeir.

„Sú ákvörðun að Reykja­vík hafi ekki brotið nýtt land fyrir nýjar íbúða­byggðir á síð­ari árum, það er stór þátt­ur,“ bætti hann við. „Eins með hin sveit­ar­fé­lög­in, það er ekki verið mikið af nýju landi brotið fyrir hús­næði, það hefur mikil áhrif.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent