Sérfræðingur Eflingar segir að svo virðist sem menn hafi samið af sér í bullandi hagvexti

Kaupmáttarrýrnun ársins 2022 verður ekki bætt í samningnum sem undirritaður var í dag og kaupmáttaraukning á næsta ári verður mun minni en sú sem tryggð var í lífskjarasamningnum, segir Stefán Ólafsson.

Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson.
Auglýsing

Telja menn að 6,75 pró­sent launa­hækkun í 9,4 pró­sent verð­bólgu og verð­bólgu­spá fyrir næsta ár upp á rúm 6 pró­sent sé við­un­and­i?,“ spyr Stefán Ólafs­son, pró­­fessor emeritus við Háskóla Íslands sem starfar sem sér­­fræð­ingur hjá Efl­ing­u-­­stétt­­ar­­fé­lagi, í færslu á Face­book í dag. Til­efnið eru þeir kjara­samn­ingar sem VR, LÍV og sam­flot iðn­að­ar­manna skrif­uðu undir í dag og munu gilda út jan­úar 2024 verði þeir sam­þykktir í atkvæða­greiðslu. 

­Með gerð samn­ing­anna er búið að semja fyrir 80 pró­sent almenna mark­að­ar­ins en stærsti hóp­ur­inn þar sem ósamið er við er Efl­ing, næst fjöl­menn­asta stétt­ar­fé­lag lands­ins. 

Stefán segir að kaup­mátt­arrýrnum árs­ins 2022 verði ekki bætti í samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var í dag og kaup­mátt­ar­aukn­ing á næsta ári geti aldrei náð kaup­mátt­ar­aukn­ingu lífs­kja­rassamn­ings­ins, sem var rúm fjögur pró­sent á ári fyrir verka­fólk og að með­al­tali um tvö pró­sent hjá öllu full­vinn­andi fólki. Ef það verði kaup­mátt­ar­aukn­ing á næsta ári þá verði hún að óbreyttu í kringum 0,5 pró­sent að með­al­tali. „Þessu ná menn með því að telja hag­vaxt­ar­auk­ann sem samið var um í síð­asta samn­ingi (13.000 kr. á mán­uði) með í þess­ari 6,75 pró­sent hækk­un. Menn hafa þá keypt hag­vaxt­ar­auk­ann tvisvar! Þetta telst vera nokkuð mikil nægju­semi. Svo virð­ist sem menn hafi samið af sér í bull­andi hag­vexti, sem nálg­ast upp­gripa­árið 2007!“

Telja menn að 6,75% launa­hækkun í 9,4% verð­bólgu og verð­bólgu­spá fyrir næsta ár upp á rúm 6% sé við­un­and­i?...

Posted by Stefán Ólafs­son on Monday, Decem­ber 12, 2022

Að hámarki 66 þús­und krónur

Samn­ing­­arnir sem Sam­tök atvinn­u­lífs­ins und­ir­­rit­uðu við VR, LÍV og sam­­flot iðn­­að­­ar­­manna í dag gilda frá 1. nóv­­em­ber síð­­ast­liðnum og til 31. jan­úar 2024. Í þeim fel­­ast að almennar launa­hækk­­­anir verða 6,75 pró­­sent og þær taka gildi frá 1. nóv­­em­ber síð­­ast­liðn­­­um. Hækk­­unin getur þó að hámarki orðið 66 þús­und krón­­ur, sem þýðir að þak hennar er rétt undir einni milljón króna mán­að­­ar­­laun­­um. Þá var samið um að des­em­ber­­upp­­­bót fyrir næsta ár verði 103 þús­und krónur og orlofs­­upp­­­bót 56 þús­und krón­­ur. 

Auglýsing
Hag­vaxt­ar­auk­inn svo­­kall­aði, sem átti að taka gildi 1. apríl næst­kom­andi, fellur sam­hliða nið­­ur. Það þýðir að hag­­vaxt­­ar­auk­inn fellur inn í launa­hækk­­un­ina. Auk þess taka nýjar launa­töflur gildi hjá fólki sem vinnur sam­­kvæmt taxta sem leiða til ein­hverra hækk­­ana umfram almennu hækk­­un­ina.

Gerðir eru skamm­­tíma­­samn­ingar vegna við­­sjár­verðra aðstæðna í efna­hags­líf­inu sem birt­­ast í mik­illi þenslu og hárri við­var­andi verð­­bólgu, sem mælist nú 9,3 pró­­sent. Mikil alþjóð­­leg óvissa vegna stríðs­á­­taka og ann­­arrar svipt­inga vigta þar líka inn í. 

Samn­ing­­arnir eru fram­­leng­ing á lífs­kjara­­samn­ingnum sem gerður var í apríl 2014 og með því er við­ræðum um öll önnur atriði en launa­lið­inn frestað fram í næstu lotu við­ræðna, sem stefnt er að því að ljúka seint á næsta ári. Þá er von­­ast til að verð­­bólga verði farin að hjaðna veru­­lega og því betri for­­sendur til að semja til lengri tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent