Sérstakur saksóknari vill áfrýja máli Hannesar Smárasonar

10016453455-dc0239b163-z.jpg
Auglýsing

Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara mun leggja til við rík­is­sak­sókn­ara að máli emb­ætt­is­ins gegn Hann­esi Smára­syni verði áfrýjað til Hæsta­rétt­ar. Þetta fékk Kjarn­inn stað­fest hjá emb­ætt­inu í morg­un. Hannes var í morgun sýkn­aður í hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir að hafa tæpa þrjá millj­arða króna af reikn­ingi FL Group á meðan að hann var stjórn­ar­for­maður félags­ins. Fénu á Hannes svo að hafa ráð­stafað til Fons eign­ar­halds­fé­lags, þá í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar, sem not­uðu það til að borga fyrir danska lággjald­ar­flug­fé­lagið Sterl­ing á árinu 2005.

Sak­sókn­ari máls­ins, Finnur Þór Vil­hjálms­son, fór fram á að Hannes yrði dæmdur í tveggja til þriggja ára fang­elsi fyrir fjár­drátt í Sterl­ing-­mál­inu. Verj­andi Hann­es­ar, Gísli Guðni Hall, byggði vörn hans á því að ekki hafi verið sýnt fram á að bind­andi fyr­ir­mæli hafi verið gefin um milli­færsl­una eða ekki. Hannes sagð­ist sjálfur vera sak­laus af ákærunni og að ekk­ert benti til þess að milli­færslan hefði yfir höfuð átt sér stað.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um málið í lok jan­úar síð­ast­lið­ins. 

Auglýsing

Ósannað að Hannes hafi látið milli­færa



Í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms segir að ósannað sé að Hannes hafi látið milli­færa upp­hæð­ina, en hann neitar því að hafa gert það. Í dómnum seg­ir: "Sam­kvæmt því sem rakið hefur verið eru engin gögn frá W um milli­færsl­una á reikn­ing Z hinn 25. apríl 2005. Vitni sem störf­uðu við bank­ann á þeim tíma sem hér um ræðir gátu ekk­ert upp­lýst um þetta. Þá benda sum gögn frá bank­an­um, eins og svör bank­ans til end­ur­skoð­anda Y sem rakin voru að fram­an, til þess, að engin milli­færsla til Z hafi átt sér stað og féð á bak­a­reikn­ingi nr. [....] hafi allan tím­ann verið Y aðgengi­legt. Allt sætir þetta nokk­urri furðu og engar full­nægj­andi skýr­ingar hafa komið fram um þetta. Ákæru­valdið verður að bera hallan vegna algjörs skorts á gögnum frá W um milli­færsl­una til Z auk þess sem engin vitn­is­burður skýrir hana eins og rakið hefur ver­ið.

 Að öllu ofan­rit­uðu virtu og öðrum gögnum máls­ins er ósann­að, gegn ein­dreg­inni neitun ákærða, að hann hafi látið milli­færa 2.875.000.000 króna af banka­reikn­ingi Y yfir á banka­reikn­ing Z hinn 25. apríl 2005. Ber sam­kvæmt þessu að sýkna ákærða af fjár­drætt­i".

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None