Sólveig Anna segist hafa orðið fyrir ofbeldishótunum frá starfsmanni Eflingar

Formaður Eflingar segist hafa tekið sína ákvörðun. Hún sé að viðurkenna fyrir sér sjálfri hverjar takmarkanir sínar sem manneskju eru þegar fólk sé reiðubúið að svipta hana ærunni opinberlega en „stendur þögult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi“.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, sem sagði af sér sem for­maður Efl­ingar í gær, segir að einn af karl­kyns starfs­mönnum skrif­stofu Efl­ingar hafi „lýst því yfir við annan starfs­mann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru aug­ljós­lega ein­hvers konar ofbeld­i.“

Hún segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að umræddur starfs­maður Efl­ingar hafi látið „fylgja sög­unni, þegar hann lýsti ofbeld­is­hót­unum sínum gegn mér, að hann hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við. Það sann­aði að honum væri alvara og að hann væri fær um að fremja glæp. Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fang­elsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafn­vel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint saka­vott­orð.“

Til­efni stöðu­upp­færsl­unnar er frétt á Vísi í dag þar sem sagt er frá því að yfir­lýs­ing Sól­veigar Önnu um ástæður afsagnar hennar úr stöðu for­manns Efl­ingar hafi „hleypt illu blóði í marga starfs­menn stétt­ar­fé­lags­ins“. Þar var haft eftir heim­ildum að starfs­fólk Efl­ingar hefði fund­ist Sól­veig Anna hafa gefið „opið skot­leyfi“ með því að hafa greint frá því að hún teldi starfs­menn hafa hrakið sig úr starf­i. 

Segir mann­inn óánægðan með að hafa ekki fengið stöðu­hækkun

Sól­veig Anna segir að sér sé ekki kunn­ugt um að hún hafi gert nokkuð á hlut þess manns sem hún segir hafa hótað sér ofbeldi, og er ekki nafn­greindur í stöðu­upp­færsl­unni, en að henni skilj­ist að hann sé óánægður með að annar starfs­maður fékk stöðu­hækkun sem hann taldi sig eiga rétt á. „Það er alvitað að hann er náinn fyrrum stjórn­endum á skrif­stofu Efl­ing­ar, þeim sömu sem hafa á síð­ast­liðnum árum farið fram með enda­lausar lygar, hót­anir um dóms­mál og óhróður gegn mér, í fjöl­miðlum og víð­ar.

Auglýsing
Þetta dæmi, sem er stað­fest með skrif­legum vitn­is­burði sem liggur inni hjá mannauðs­stjóra skrif­stofu Efl­ing­ar, er aðeins eitt af mörgum um það ofstæki og þá heift sem þótt hefur eðli­legt að ég sitji undir af hálfu starfs­fólks Efl­ingar frá þeim degi sem ég var kosin sem for­maður Efl­ing­ar.“

Hún telji blasa við að nú verði hún sökuð um lygar, og beðin um sönn­un­ar­gögn sem aldrei verða nógu mark­tæk. „Ég verð sjálf sögð vera vand­mál­ið. Ég stundi ógn­ar­stjórn og gangi um með aftöku­lista. Skelli jafn­vel hurð­um, svo fast að starfs­fólk Efl­ingar ótt­ist mig og þurfi sér­staka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi til­kynnt um málið til lög­reglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfs­menn á vinnu­staðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa upp­á­komu. Þeir munu eflaust ekki kann­ast lengur við neitt.“

Drama­tík á síð­ustu dögum

​​For­­­saga máls­ins er sú að í júní sam­­­þykktu starfs­­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­­lega. Í henni voru stjórn­­­endur stétt­­­ar­­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­­fólki. Trún­­­að­­­ar­­­menn starfs­­­manna und­ir­­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­­manna. 

Á fimmt­u­dag birti RÚV svo við­­­tal við Guð­­­mund Bald­­­ur­s­­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­­ars um að starfs­­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­­ar­­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­­veig Anna starfs­­­menn á föst­u­­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér. 

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­­gjarnt að stjórn­­­endur veltu ábyrgð á inn­­­an­hús­­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­­veig Anna af sér og sagði starfs­menn Efl­ingar hafa hrakið sig úr starfi.

Fleiri með vit­neskju um hót­un­ina

Í stöðu­upp­færsl­unni í kvöld segir hún að starfs­fólk Efl­ingar hafi talið mjög brýnt og nauð­syn­legt að hún sitji áfram undir óleið­réttum ásök­un­um. „Í salnum sat starfs­mað­ur­inn, sem sjálfur varð vitni að ofbeld­is­hót­unum í minn garð frá þessum sam­starfs­manni okk­ar, og sem hefur sagt frá upp­á­kom­unni við nokkra aðra starfs­menn. Í salnum sátu einnig fleiri úr hópi þeirra sem hafa fengið vit­neskju um hót­un­ina, til dæmis trún­að­ar­maður vinnu­stað­ar­ins, sá sami og gengið hefur harð­ast fram í glóru­lausum ásök­unum gegn mér og kröfum um að vinnu­staða­fundum verði snúið upp í rétt­ar­höld yfir glæpum mín­um.

Ég var ekki á fund­in­um. Ég veit því ekki hvort ein­hver fund­ar­manna sem hafði vit­neskju um rétt svo tveggja vikna gamlar ofbeld­is­hót­an­irnar gegn mér hafi rétt upp hönd, spurt ef til vill spurn­inga, velt því ef til vill upp hvort komið væri gott af „opnu skot­leyfi“ á mig? Það veit ég ekki, en ég veit hver nið­ur­staðan var af fund­in­um.“

Stendur við ákvörðun sína

Sól­veig Anna seg­ist hafa tekið sína ákvörðun og ætla að standa við hana. Hún sé ekki að hlaup­ast undan merkj­um.

„Ég er ein­ungis að við­ur­kenna fyrir sjálfri mér og öðrum hverjar tak­mark­anir mínar sem mann­eskju eru, þegar fólk sem ég þarf að geta treyst hefur lýst sig reiðu­búið að svipta mig ærunni opin­ber­lega en stendur þög­ult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi fyrir framan augun á þeim.

Ég legg til að við, und­ir­okað fólk af stétt verka- og lág­launa­fólks, stöndum sam­an. Ég hvet til þess að við áttum okkur á því að heim­ur­inn sem við lifum í er skakk­ur, við­snú­inn, bjag­að­ur. Í þess­ari skekkju hallar alltaf á okk­ur. Að átta sig á því er fyrsta skref­ið. Svo fikrum við okkur áfram sam­an, eitt skref í einu, stöppum stál­inu hvert í ann­að, vinnum fyrst lít­inn sig­ur, svo annan lít­inn og svo stór­an. Óhjá­kvæmi­lega getum við þurft að stíga skref til baka líka – það er erfitt – en við getum barist áfram og gert þennan skakka heim rétt­an.“

Á Vísi í dag er sagt frá því að yfir­lýs­ing mín um ástæður afsagnar minnar úr stöðu for­manns Efl­ingar hafi „hleypt ill­u...

Posted by Sól­veig Anna Jóns­dóttir on Monday, Novem­ber 1, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent