Styrkur til stærstu fjölmiðlanna dregst saman en styrkur til Bændasamtakanna hækkar

Alls fá 25 fyrirtæki rekstrarstyrk úr ríkissjóði vegna fjölmiðlareksturs. Aukin fjöldi umsókna, hærri styrkir til sumra og minni heildarpottur orsakar það að flestir fréttamiðlar fá lægra hlutfall af stuðningshæfum kostnaði endurgreiddan nú en í fyrra. .

Lilja D. Alfreðsdóttir er ráðherra fjölmiðlamála.
Lilja D. Alfreðsdóttir er ráðherra fjölmiðlamála.
Auglýsing

Þrjú stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­ur, Sýn og Torg fá hvert um sig tæp­lega 66,8 millj­ónir króna í rekstr­ar­stuðn­ing úr rík­is­sjóði í ár. Alls var 381 milljón króna úthlutað af sér­stakri úthlut­un­ar­nefnd sem skipuð er af Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, og því fór tæp­lega 53 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem úthlutað var í rekstr­ar­styrki til fjöl­miðla til þeirra. 

Upp­hæðin sem stóru fjöl­miðla­fyr­ir­tækin þrjú fengu sam­tals lækk­aði um 44 millj­ónir króna frá því í fyrra þegar þau fengu 62 pró­sent úthlut­aðra styrkja, eða um 14,7 millj­ónir króna hjá hverju þeirra. Ástæður þessa eru þær að heild­ar­pott­ur­inn sem úthlutað var úr lækk­aði um átta millj­ónir króna milli ára, fleiri fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sóttu um stuðn­ings­greiðslur nú en í fyrra og sumir aðilar fengu hærri greiðslur nú en áður.

Í ár bár­ust 28 umsóknir um styrk en þremur þeirrra var synjað þar sem þær upp­fylltu ekki öll skil­yrði fyrir rekstr­ar­stuðn­ingi. Því fengu 25 fyr­ir­tæki rekstr­ar­stuðn­ing en í fyrra voru þau 21 tals­ins.

Auglýsing
Á meðal þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem fá styrk nú, en fengu ekki í fyrra, eru Sól­tún, sem heldur úti vefnum Mann­lífi sem er rit­stýrt af Reyni Trausta­syni. Það fyr­ir­tæki fékk 10,5 millj­ónir króna í styrk. Þá fékk Birt­ingur útgáfu­fé­lag, sem gefur meðal ann­ars út Vik­una, styrk upp á 13,2 millj­ónir króna, en félagið sótti ekki um stuðn­ings­greiðslur fyrir lok til­greinds umsókn­ar­frests í fyrra. 

Bænda­sam­tökin bæta við sig 4,4 millj­ónum króna

Sá aðili sem eykur rekstr­ar­stuðn­ing sinn mest milli ára eru Bænda­sam­tök Íslands, sem eru ekki atvinnu­greina­flokkuð sem útgáfu­starf­semi heldur sem hags­muna­sam­tök. Rekstr­ar­stuðn­ing­ur­inn er vegna útgáfu Bænda­blaðs­ins og nemur 16,8 millj­ónum króna nú, sem er 4,4 millj­ónum krónum meira en Bænda­sam­tökin fengu í greiðslur í fyrra.

Rit­stjórn Bænda­blaðs­ins heyrir undir útgáfu- og kynn­ing­ar­svið Bænda­sam­taka Íslands. Á heima­síðu Bænda­sam­tak­anna segir að hlut­verk þeirra sé að vera „málsvari bænda og gæta hags­muna þeirra í hví­vetna“. Meg­in­mark­mið þeirra sé að „beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstr­ar­skil­yrðum í land­bún­aði auk þess að miðla upp­lýs­ingum og sinna fræðslu til sinna félags­manna.“

Bænda­blaðið er sent end­ur­gjalds­laust á öll lög­býli á Íslandi.

Norð­lenska fjöl­miðla­fyr­ir­tækið N4, sem er meðal ann­ars í eigu KEA, Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og Síld­ar­vinnsl­unn­ar, fær nú 20,7 millj­ónir króna í styrki eða 1,3 millj­ónum krónum meira en fyr­ir­tækið fékk í fyrra. 

Greiðslur til ýmissa frétta­miðla lækka

Rekstr­ar­stuðn­ing­ur­inn getur að hámarki verið 25 pró­sent af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði umsækj­enda sem upp­fylla ýmis skil­yrði sem sett eru fyrir því að fá greitt úr pott­in­um. Sé sótt um hærri upp­hæð en búið er að gera ráð fyrir að ráð­stafa skerð­ist hlut­fallið af rekstr­ar­kostn­aði sem fæst greitt hjá hverjum og einum umsækj­anda. Í þau skipti sem greiðsl­unum hefur verið úthlutað þá hefur ætið verið sótt um mun hærri upp­hæð en er til skipt­anna.

Auglýsing

Sá kostn­aður sem er stuðn­ings­hæfur er kostn­aður við rekstur rit­stjórn­ar. 

Kjarn­inn miðl­ar, útgáfu­fé­lag Kjarn­ans, jók launa­kostnað í fyrra um 35 pró­sent og fjölg­aði árs­verkum úr 6,2 í 9,3 á árinu 2021. Nær öll þessi aukn­ing var vegna fjölg­unar á rit­stjórn mið­ils­ins. Rekstr­ar­stuðn­ing­ur­inn í ár er þó nán­ast nákvæm­lega sá sami í ár og hann var í fyrra, eða 14,5 millj­ónir króna. 

Önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki en þau sem nefnd hafa verið hér að ofan sem fengu yfir tíu millj­ónir króna í rekstr­ar­styrk eru Myllu­set­ur, útgáfu­fé­lag Við­skipta­blaðs­ins og tengdra miðla, sem fær 25 millj­ónir króna, eða 1,8 millj­ónum krónum minna en í fyrra, og útgáfu­fé­lag Stund­ar­inn­ar, sem fær 22,3 millj­ónir króna, eða þremur millj­ónum minna en í fyrra.

Kjarn­inn er eitt þeirra fjöl­miðla­­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­­ar­­stuðn­­ings.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent