Svindlið hjá Volkswagen dregur markaði í svaðið

volkswagen.jpg
Auglýsing

Hluta­bréfa­mark­aðir um nær allan heim hafa sýnt rauðar tölur lækk­unar í dag og er svindli þýska bíla­fram­leið­and­ans Volkswagen kennt um, að því er fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal. S&P 500 vísi­talan í Banda­ríkj­un­um hefur lækkað um 1,5 pró­sent þegar þetta er rit­aði, DAX vísi­talan í Þýska­landi lækk­aði um tæp­lega þrjú pró­sent og Nikkei vísi­talan í Japan um tæp­lega tvö pró­sent.

Volkswagen hefur nú við­ur­kennt að hafa fram­leitt ell­efu millj­ónir bíla og selt um allan heim með kerfi sem var ætlað að svindla á útblást­urs­próf­un­um. Í fyrstu náðu inn­kall­an­irnar á bílum fyr­ir­tæk­is­ins til 482 dísel bíla sem komu á göt­una á árunum 2009 til 2015 í Banda­ríkj­un­um, en nú er ljóst að málið er mun víð­tækara.

Mark­aðsvirði Volkswagen hefur hrunið um þriðj­ung á tveimur dögum og gæti fyr­ir­tækið fengið him­in­háar sektir vegna svindls­ins. Banda­rísk yfir­völd vilja sekta um 37.500 Banda­ríkja­dali fyrir hvert til­vik, og í til­felli fyrstu til­vikanna sem uppgvöt­uð­ust þá gat sektin orðið 18 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 2.300 millj­örðum króna.

Auglýsing

Ljóst er að upp­hæðin getur orðið mun hærri, og jafn­vel gert útaf við fjár­hags­stöðu bílaris­ans. Þá hafa banda­rísk yfir­völd til­kynnt um að saka­mála­rann­sókn sé hafin en svindl sem þetta er litið mjög alvar­legum augum í Banda­ríkj­unum og gætu stjórn­endur félags­ins átt yfir höfði sér margra ára fang­elsi.

Þess er nú beðið að staða mála hjá öðrum bíla­fram­leið­endum verði greind, en grunur leikur á því að fleiri fram­leið­endur hafi einnig beitt svindli á útblást­urs­próf­un­um, en þau til­felli hafa ekki verið stað­fest.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None