Tannburstarnir í skóginum

Jordan, tannburstaframleiðandinn þekkti, hefur auglýst eftir notuðum tannburstum sem áhugi er á að reyna að endurvinna. Í norskum skógi hafa fleiri þúsund tannburstar frá Jordan legið í áratugi og rifist er um hver beri ábyrgð á að tína þá upp.

Þeir skipta þúsundum, tannburstarnir í norska skóginum.
Þeir skipta þúsundum, tannburstarnir í norska skóginum.
Auglýsing

Á dög­unum greindu norskir fjöl­miðlar frá því að í Åsnes-Finns­skógi norð­austur af Ósló, nærri landa­mær­unum að Sví­þjóð, væri að finna tann­bursta í þús­unda vís í haug­um. Burstar þessir hafa verið í skóg­inum frá því að Jor­dan tann­bursta­fram­leið­and­inn var með verk­smiðju í smá­bænum Flisa. Jor­dan hafði gert sam­komu­lag við land­eig­and­ann um að nota skóg­inn til förg­unar bursta sem ein­hverra hluta vegna þóttu ekki af nægi­legum gæðum til að enda í hillum versl­ana. Þetta var á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu ald­ar.

En nú þegar félagið Orkla hefur keypt Jor­dan hefur allt frá upp­götvun rusla­haugs­ins í haust verið deilt um hver eigi að bera kostn­að­inn að hreins­un­inni.

Á sama tíma er Jor­dan hins vegar að hvetja fólk til að skila sér not­uðum tann­burstum vegna til­rauna sem fyr­ir­tækið vill gera á end­ur­nýt­ingu þeirra. „Þeir hefðu getað fengið 100 kíló af tann­burstum á fimm mín­útum ef þeir hefðu farið í Åsnes-­skóg,“ hefur norska rík­is­tút­varpið eftir Robert Tollef­sen sem fer fyrir sam­tök­unum Plast­p­írat­arn­ir.

Auglýsing

Jor­dan hefur beðið not­endur tann­bursta sinna í Nor­egi og Portú­gal um að skila not­uðum burstum til sín í fyrr­nefndi til­raun til end­ur­vinnslu. Allt í nafni lofts­lags­ins að sjálf­sögðu. „Það getur vel verið að tann­burst­arn­ir, eða ein­hverjir þeirra að minnsta kosti, sem er að finna í land­fyll­ing­unni [í skóg­in­um] fari inn í þetta verk­efn­i,“ hefur NRK eftir upp­lýs­inga­full­trúa Jor­d­an. „Það væri vissu­lega mjög áhuga­vert og eitt af því sem við erum að skoða.“

Upp­lýs­inga­full­trú­inn bendir hins vegar á að við­ræður standi yfir milli þriggja aðila, sveit­ar­fé­lags­ins, Orkla og land­eig­and­ans, um hvernig staðið verður af hreins­un­inni í skóg­in­um. Finna þurfi „bestu lausn­ina“ í sam­vinnu þess­ara aðila. Hvort að tann­burst­arnir í skóg­inum henti til end­ur­vinnslu er líka annað mál. Um það veit Jor­dan ekki á þess­ari stundu þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa ekki sótt bursta til skoð­un­ar.

Toll­e­fesen plast­p­írati segir að mögu­leg end­ur­vinnsla tann­bursta sé að sjálf­sögðu hið besta mál. „Þeir fá prik fyrir það,“ segir hann. „Það verða allir að hugsa í lausn­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent