Þeir sem fá dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða verði heimilt að vinna

Þingmenn fjögurra stjórnarandstöðuflokka vilja að útlendingar sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða vegna sérstakra tengsla við Ísland verði undanþegnir kröfu um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Auglýsing

Þrettán þing­menn Pírata, Flokks fólks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar hafa lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga er varðar tíma­bundið atvinnu­leyfi. Þing­menn­irnir vilja að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega heldur verði þeim heim­ilt að vinna þegar þeir hafa fengið dval­ar­leyfi.

Fyrsti flutn­ings­maður er Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata. Með henni eru þau Andrés Ingi Jóns­son, Björn Leví Gunn­ars­son, Gísli Rafn Ólafs­son, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Hall­dóra Mog­en­sen, Helga Vala Helga­dótt­ir, Jakob Frí­mann Magn­ús­son, Jóhann Páll Jóhanns­son, Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, Sig­mar Guð­munds­son, Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir og Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir.

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að með frum­varp­inu sé lagt til að útlend­ingar sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða vegna sér­stakra tengsla við landið sam­kvæmt lögum um útlend­inga verði und­an­þegnir kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi hér á landi.

Auglýsing

Fjöldi ein­stak­linga með dval­ar­leyfi en fær ekki að vinna

„Með því er átt við að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, til dæmis vegna þess að þeir upp­fylla ekki skil­yrði þess að fá alþjóð­lega vernd, þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega heldur verði þeim heim­ilt að vinna þegar þeir hafa fengið dval­ar­leyfi.

Núver­andi fyr­ir­komu­lag leiðir til þess að hér á landi dvelur tals­verður fjöldi ein­stak­linga sem hefur fengið heim­ild til dvalar af fram­an­greindum ástæð­um, án þess að hafa heim­ild til þess að sjá fyrir sér með atvinnu­þátt­töku,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá er bent á að atvinnu­leyf­is­um­sóknir ein­stak­linga með dval­ar­leyfi af þessu tagi séu jafnan sam­þykktar hjá Vinnu­mála­stofnun en ferlið feli engu að síður í sér hindr­anir sem tak­marka aðgengi þeirra að vinnu­mark­aði.

Þess er getið að breyt­ing­arnar sem lagðar eru til í frum­varp­inu hafi áður verið lagðar fram í frum­varpi dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um útlend­inga og lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga. Það frum­varp sé þó þeim ágalla haldið að þrátt fyrir þær jákvæðu breyt­ingar sem hafi verið að finna í því hefði frum­varpið að geyma aðrar breyt­ingar á lögum um útlend­inga sem ágrein­ingur sé um. Hafi þær komið í veg fyrir að þær óum­deildu breyt­ingar sem lagðar eru hér fram nái fram að ganga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent