Umboðsmaður Alþingis vill fá skýringar frá lögreglustjóra á barnabanninu við eldgosið

Umboðsmaður Alþingis hefur sent bréf á lögreglustjórann á Suðurnesjum með ósk um útskýringar á umdeildu banni við umferð barna yngri en 12 ára upp að gosstöðvunum í Meradölum. Lögreglustjóri hefur sagt ákvörðunina reista á ákvæðum almannavarnarlaga.

Eldgosið í Meradölum er mikið sjónarspil, en nú bannað börnum yngri en 12 ára.
Eldgosið í Meradölum er mikið sjónarspil, en nú bannað börnum yngri en 12 ára.
Auglýsing

Umboðs­maður Alþingis hefur sent bréf til Úlf­ars Lúð­víks­son­ar, lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, þar sem þess er meðal ann­ars óskað að lög­reglu­stjór­inn skýri á hvaða laga­grund­velli sú ákvörðun að banna börnum yngri en 12 ára að ganga upp að eld­gos­inu í Mera­dölum sé reist.

Bréfið, sem sent var í gær, er birt á vef umboðs­manns í dag, en til­kynnt var um barna­bannið við gos­s­töðv­arnar fyrr í vik­unni.

Skúli Magnússon er umboðsmaður Alþingis.

Úlfar lög­reglu­stjóri hefur í sam­tölum við fjöl­miðla sagt að sú ákvörðun að banna börnum undir 12 ára að fara að gos­inu hafi verið reist á heim­ild í lögum um almanna­varn­ir, nánar til­tekið 23. grein almanna­varna­laga, eins og haft var eftir honum á vef RÚV.

Einnig hélt Úlfar því til haga, í við­tali við RÚV, að þrátt fyrir að ekki væru refsi­á­kvæði í almanna­varna­lög­unum gæti lög­regla beitt ein­stak­linga sektum sem ekki færu eftir fyr­ir­mælum lög­reglu.

„Ég tel mig hafa haft heim­ild til þess að gera það sem ég gerði, ákvörðun lög­reglu­stjóra stend­ur,“ sagði Úlfar við RÚV í gær.

Auglýsing

Ákvörð­unin hefur verið umdeild og sumir for­eldrar barna undir 12 ára aldri gagn­rýnt bannið – og telja að það eigi að vera í höndum for­eldra að meta hvort börn undir 12 ára eigi erindi upp að gos­inu eða ekki.

All­mörg dæmi eru þó um að fólk, sér í lagi erlendir ferða­menn, hafi verið með börn á ferð við gos­s­töðv­arnar sem ekki hafa neitt í krefj­andi göngu að gera, jafn­vel við erf­iðar veð­ur­að­stæð­ur.

Auk þess að spyrja út í laga­grund­völl ákvörð­unar lög­reglu­stjór­ans vill umboðs­maður fá að vita hvaða gögn, upp­lýs­ingar og rök­semdir lágu til grund­vallar því mati að rétt væri að tak­marka aðgengi barna yngri en 12 ára að svæð­inu í Mera­döl­um.

Þá vill umboðs­maður fá að vita hvort og hvenær ákvörð­unin tók gildi og hvort henni hafi verið mark­aður sér­stakur gild­is­tími og einnig með hvaða hætti lög­reglu­stjór­inn hafi kynnt almenn­ingi ákvörðun sína eða hvort hann hygg­ist gera slíkt.

Umboðs­maður óskar þess að svar ber­ist frá lög­reglu­stjóra eigi síður en 17. ágúst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent