Umboðsmaður hættir athugun á skipun ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra vegna aðkomu Alþingis

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á skipun ríkisendurskoðanda í stöðu ráðuneytisstjóra í nýju menningar- og viðskiptaráðuneyti í ljósi aðkomu Alþingis. Umboðsmaður tekur þó enga efnislega afstöðu til málsins.

Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skipaði Skúla Eggert Þórðarson ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skipaði Skúla Eggert Þórðarson ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Auglýsing

Umboðs­maður Alþing­is, Skúli Magn­ús­son, mun ekki hafa frek­ari afskipti af ákvörðun menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra að skipa Skúla Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs ráðu­neyt­is. Ástæðan er sú að Alþingi kom að ákvörð­un­inni og tók afstöðu til henn­ar. Því er það mat umboðs­manns að það sé utan starfs­sviðs emb­ætt­is­ins að fjalla um flutn­ing­inn.

Skúli Egg­ert, sem verið hefur rík­­is­end­­ur­­skoð­andi frá árinu 2018, var í lok jan­úar skip­aður ráðu­­neyt­is­­stjóri nýs menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytis og hóf þar störf þann 1. febr­­ú­­ar. Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, ferða­­mála-, menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráð­herra, skip­aði í emb­ætt­ið.

Auglýsing

Í til­­kynn­ingu­ frá Stjórn­ar­ráð­inu í lok jan­úar kom fram að ákvörðun um flutn­ing Skúla Egg­erts í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra hafi verið tekin á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­­manna rík­­is­ins milli starfa.

Óljóst hvaða laga­legi grund­völlur væri fyrir skip­un­unum

Sama dag og Skúli Egg­ert hóf störf óskaði umboðs­maður Alþingis eftir skýr­ingum á laga­­legum grund­velli fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýs ráðu­­neyt­is­­stjóra. Sams konar bréf sendi hann á Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­­að­­ar- og nýsköp­un­­ar­ráð­herra vegna ákvörð­unar hennar að skipa Ásdísi Höllu Braga­dóttur í tíma­bundið emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti.

Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis.

Af bréfum umboðs­­manns til ráð­herr­anna tveggja mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­­lega á því hvaða laga­­legi grund­­völlur hafi verið fyrir þess­um skip­unum og setn­ingu í emb­ætti – að minnsta kosti óskaði hann skýr­inga og höfðu ráðu­neytin frest til 11. febr­úar til að skýra á hvaða laga­grund­velli ákvarð­an­irnar voru tekn­ar.

Í bréfi sem menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytið sendi umboðs­manni 10. febr­úar kemur fram að Lilja hafi óskað eftir því við for­seta Alþingis að Skúli Egg­ert yrði fluttur úr emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­unar til for­seta Alþingis sem fall­ist var á með bréfi 27. jan­úar með vísan til 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem segir meðal ann­ars að stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, geti flutt emb­ætt­is­mann í annað starf án aug­lýs­ing­ar, enda liggi fyrir ósk eða sam­þykki emb­ætt­is­manns­ins sjálfs.

Jóhann Páll Jóhann­s­­son þing­­­maður Sam­­­fylk­ingar vakti athygli á skipan rík­is­end­ur­skoð­anda á Alþingi, dag­inn sem Skúli Egg­ert hóf störf. Jóhann Páll full­yrti að verið væri að mis­­­beita fyrr­nefndri 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­­­manna rík­­­is­ins með skipan rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda í ráðu­­neyt­is­­stjóra­emb­ættið og setja „hætt­u­­legt for­­dæmi“.

Utan starfs­sviðs umboðs­manna að fjalla um málið vegna aðkomu Alþingis

Umboðs­maður sendi Lilju Alfreðs­dóttur bréf á fimmtu­dag þar sem fram kemur að athugun hans á skipan þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytis sé lok­ið.

Í til­kynn­ingu á heima­síðu Umboðs­manns Alþingis kemur fram að eftir að umboðs­maður hóf athugun sína barst honum til­kynn­ing frá Alþingi þar sem aðkomu þings­ins að ákvörð­un­inni að skipa Skúla Egg­ert ráðu­neyt­is­stjóra var lýst, auk þess sem fram kom afstaða til þeirra laga­sjón­ar­miða sem byggt var á við flutn­ing­inn.

Í bréf­inu segir meðal ann­ars að í ljósi aðkomu og afstöðu þings­ins verði ekki hjá því kom­ist að líta svo á að það falli utan við starfs­svið umboðs­manns, þar sem það taki ekki til starfa Alþing­is, að fjalla um ákvörðun ráð­herra að skipa við­kom­andi með þeim hætti sem gert var og án und­an­geng­innar aug­lýs­ing­ar. Ekki séu því laga­skil­yrði til þess að emb­ætti umboðs­manns geti haldið athugun sinni áfram.

Umboðs­maður tekur þó fram að með nið­ur­stöð­unni hefði engin efn­is­leg afstaða verið tekin til atvika máls­ins eða þeirra skýr­inga sem hefðu verið færðar fram vegna þess.

Engin aðkoma Alþingis í skipun Ásdísar Höllu í nýtt ráðu­neyti

Nið­ur­staða í máli háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sem skip­aði Ásdísi Höllu Braga­dótt­ur, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra í Garða­bæ, sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða án und­an­geng­innar aug­lýs­ing­ar, var hins vegar allt önn­ur. Þar kom Alþingi ekki að ákvörð­un­inni og komst Umboðs­maður Alþingis að því að Áslaug Arna hafi brotið lög með því að setja Ásdísi Höllu sem ráðu­neyt­is­stjóra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráð­herra háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar, var ekki heim­ilt að setja Ásdísi Höllu Braga­dótt­ur, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra í Garða­bæ, sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða án und­an­geng­innar aug­lýs­ing­ar.

Ás­laug Arna setti Ásdísi Höllu í emb­ættið í lok jan­ú­ar. Starfið var svo aug­lýst laust til umsóknar 3. febr­­ú­ar og er Ásdís Halla meðal þeirra átta sem sækj­­ast eftir starf­inu. Áður hafði Ásdís Halla verið ráð­in verk­efna­­­stjóri við und­ir­­­bún­­­ing ráðu­­­neyt­is­ins, sem er nýtt, í byrjun des­em­ber í fyrra.

Í áliti umboðs­­manns segir að aðrar leiðir hefðu verið færar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins. „Við stofnun ráðu­­neyt­is­ins hefði orð­ið til nýtt emb­ætti og ekki yrði séð að lög­­bundnar und­an­­tekn­ingar frá því að aug­lýsa það laust til umsókn­­ar, og setja tíma­bundið í emb­ættið á þeim grund­velli sem ráðu­­neytið byggði á, ættu við um þá stöðu sem var upp­­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent