Vextir og fjármagnskostnaður þurfa að lækka til að byggja upp leigumarkað

ABH3597.jpg húsnæði húsnæðisskortur
Auglýsing

Hátt vaxta­stig og fjár­magns­kostn­aður er ástæða þess að ekki eru for­sendur fyrir því að byggja upp íbúða­leigu­markað á Íslandi. Leigu­fé­lög þyrftu að hafa aðgengi að lánsfé sem beri um þrjú pró­sent raun­vexti til að rekstur þeirra myndi borga sig. Það mun ekki ger­ast nema með sam­stilltu átaki stjórn­valda, verka­lýðs­hreyf­ingar og líf­eyr­is­kerf­is­ins. Þetta segir Helgi S. Gunn­ars­son, for­stjóri fast­eigna­fé­lags­ins Reg­ins, í opnu­við­tali við Við­skipta­Mogg­ann í dag.

Helgi segir íbúða­leigu­mark­að­inn allt ann­ars eðlis en sá fast­eigna­mark­aður sem félagið hans starfar á. Hann sé ekki lík­legur til að skila mik­illi arð­semi eins og staðan er "jafn­vel þó að kvartað sé undan háu leigu­verð­i."

Hann seg­ist ein­fald­lega vera þeirrar skoð­unar að ekki verði hægt að byggja upp leigu­fé­lög til að mæta þeirri þörf og eft­ir­spurn sem sé fyrr en að lánsfé sem ber þrjú pró­sent raun­vexti verði gert aðgengi­legt. TIl að það ger­ist þurfi lán­veit­endur að gefa eftir í ávöxt­un­ar­kröfur þeirra fjár­muna sem þeir myndu lána til verk­efn­anna.

Auglýsing

Leigu­verð hefur hækkað mikið



Ljóst er að leigu­verð hefur hækkað mjög hratt und­an­farin ár. Í júlí síð­ast­liðnum kost­aði til að mynda um 139 þús­und krónur á mán­uði að leigja 60 fer­metra tveggja her­bergja íbúð í Reykja­vík, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr leigu­gagna­grunni Þjóð­skrár. Í byrjun árs 2011 kost­aði um 101 þús­und krónur að leigja sömu íbúð. Á meðal þess sem talið er að hafi keyrt upp leigu­verð er mikið eft­ir­spurn ferða­manna eftir gist­ingu, en fjöldi þeirra hefur marg­fald­ast á örfáum árum og voru þeir um ein milljón alls í fyrra. Fjöldi þeirra hefur vaxið mjög í ár.

Hús­næð­is­verð hefur sömu­leiðis hækkað mik­ið. Þannig hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 36,5 pró­sent frá jan­úar 2011 til sama mán­aðar 2015. Frá júlí mán­uði 2014 og fram til sama mán­aðar í ár hækk­aði það um 10,6 pró­sent. Grein­endur spá auk þess allt að 25 pró­sent hækkun til við­bótar út árið 2017.

Þessi staða hefur gert mörgum hópum í íslenskum sam­fé­lagi erfitt fyrir á hús­næð­is­mark­aði. Nýlegar tölur frá Hag­stofu Íslands sýna til dæmis að tæp­lega 40 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 20 til 29 ára búa enn heima hjá for­eldrum sín­um. Í Dan­mörku er hlut­fallið um tíu pró­sent. Ein helsta ástæða þess að Íslend­ingar búa lengur í for­eldra­húsum er talin vera hátt leigu­verð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None