Vilja „skýra framtíðarsýn“ um framtíð orkufreks iðnaðar

Starfshópur á vegum umhverfisráðuneytisins kallar eftir „skýrri pólitískri sýn“ á framtíð orkufreks iðnaðar á Íslandi. Samkvæmt honum gæti verið að framboð á raforku muni ekki geta mætt vaxandi eftirspurn á næstu árum.

Vilhjálmur Egilsson, Sigríður Mogensen og Ari Trausti Guðmundsson.
Vilhjálmur Egilsson, Sigríður Mogensen og Ari Trausti Guðmundsson.
Auglýsing

Stjórn­völd þurfa að móta skýra póli­tíska sýn á hvernig orku­frekum iðn­aði verði háttað hér­lendis á næsta árum, sam­kvæmt nýrri skýrslu frá starfs­hópi á vegum umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um skýrsl­una, en hún snýr að stöðu og áskor­anir í orku­mál­um. Höf­undar hennar voru Vil­hjálmur Egils­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, Sig­ríður Mog­en­sen, sviðs­stjóri hug­verka­sviðs Sam­taka iðn­að­ar­ins, og Ari Trausti Guð­munds­son, fyrrum þing­maður VG.

Í skýrsl­unni er farið yfir gjald­eyr­is­tekj­urnar sem orku­frekur iðn­að­ur, þar á meðal álver, kís­il­ver og gagna­ver, hefur skapað á síð­ustu árum, en sam­kvæmt höf­und­unum hefur fjórð­ungur af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­innar komið það­an.

Auglýsing

Höf­und­arnir hafa einnig eftir Lands­virkjun og Lands­neti að flestir við­skipta­vinir fyr­ir­tækj­anna hyggj­ast starfa áfram á Íslandi og að áform séu til vaxtar hjá mörgum þeirra. Einnig greinir Lands­net frá því að fjöl­breyttur iðn­að­ur, meðal ann­ars í mat­væla­fram­leiðslu, líf­tækni og fisk­eldi, hafi leitað til fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi teng­ingu við flutn­ings­kerfið á síð­ustu miss­er­um.

Þá nefna þeir einnig fram­leið­endur vetnis og raf­elds­neytis sem mögu­lega stórnot­endur fram­tíð­ar, en þau bæta einnig við að Lands­net hafi þurft að hafna mörgum verk­efnum á síð­ustu miss­erum vegna stöðu flutn­ings­kerf­is­ins og/eða skorts á fram­boði á raf­orku. Þessi verk­efni kalla höf­und­arnir „töpuð tæki­færi,“ sem þeir meta að séu jafn­mikil að umfangi og heild­ar­um­svif gagna­vera hér­lendis og hefðu getað keypt orku fyrir 4-6 millj­arða króna.

Sam­kvæmt starfs­hópnum er nauð­syn­legt að fyr­ir­tæki og sveit­ar­fé­lög fái skýr skila­boð frá stjórn­völd­um, orku­fram­leið­end­um, Lands­neti og dreifi­veitum um á hvaða fram­tíð­ar­vænt­ingum um orku­fram­boð og flutn­ing megi byggja.

Líkt og Kjarn­inn hefur áður minnst á mun orku­þörfin hér­lendis aukast tölu­vert ef rík­is­stjórnin á að ná settum mark­miðum um orku­skipti á veg­um, sjó og í lofti fyrir árið 2040. Aukn­ingin verður svo enn meiri ef gert er ráð fyrir að orku­frekur iðn­aður muni halda áfram að vaxa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent